Yfir til valmyndar

2003

30.12.2003

Kögun hf. festir kaup á Landsteinum-Streng hf.

Laust fyrir áramótin festi Kögun hf. kaup á öllu hlutafé í hugbúnaðarfyrirtækinu Landsteinum Streng hf. Seljendur eru ýmsir Lífeyrissjóðir og eignarhaldsfélagið Iða hf. ásamt nokkrum smærri hluthöfum. Kaupverðið var allt greitt með hlutafé í Kögun hf. samtals 32 mkr. að nafnvirði.
Nánar
12.12.2003

Kögun kaupir Hug hf. af EJS Group hf.

Kögun hf. hefur keypt allt hlutafé hugbúnaðarfyrirtækisins Hugar hf. af EJS Group hf. Viðmiðunarkaupverð er 499 milljónir króna, sem verður fjármagnað af eigin fé Kögunar og með lántökum.
Nánar
21.11.2003

Kögun hf. stefnir að kaupum á öllu hlutafé í Hug hf.

Kögun hf. og Dseta ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að Dseta ehf. beiti sér fyrir því að allt hlutafé Hugar hf., sem er dótturfélag EJS Group hf., verði selt Kögun hf. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá endanlegum kaupsamningi á næstunni.
Nánar
14.11.2003

Atkvæðagreiðslukerfi sett upp í Genf

Starfsmenn Kögunar hafa verið í Genf, hjá Alþjóða vinnumálastofnuninni, við uppsetningu á atkvæðagreiðslukerfi undanfarna daga.
Nánar
10.11.2003

webMethods á ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins

Ráðstefna Skýrslutæknifélagsins þann 13. nóvember næstkomandi ber yfirskriftina "Samþætting kerfa: Hvenær, hvers vegna og hvernig?"
Nánar
22.09.2003

Kögun hf. gengur frá samningi um Link-16.

Kögun hf. hefur nú gengið frá samningi við bandarísk-franska fyrirtækið Thales-Raytheon Systems (TRS) um verktöku við smíði á hugbúnaði fyrir samskiptakerfi er nefnist Link-16.
Nánar
11.08.2003

Kögun hf. kaupir Ax hugbúnaðarhús hf.

Kögun hf. keypti í dag 99,43% hlutafjár í AX hugbúnaðarhúsi hf. af danska fyrirtækinu Columbus IT Partner A/S. Kaupverð hlutafjárins er 123 milljónir króna.
Nánar
08.08.2003

Samskip taka webMethods í þjónustu sína

Nýverið gerðu Samskip og Kögun með sér samning um kaup þess fyrrnefnda á webMethods samþættingarhugbúnaði. webMethods er leiðandi fyrirtæki á sviði samþættingarhugbúnaðar í heiminum og Samskip bætast í ört stækkandi hóp notenda webMethods.
Nánar
03.07.2003

Microsoft eignast Navision Ísland

Í gær, þann 2. júlí, var skrifað undir samning við Microsoft Corporation um kaup þess á öllu hlutafé Navision Ísland ehf., dótturfélagi Kögunar hf.
Nánar
20.05.2003

Alþjóða vinnumálastofnunin semur við Kögun

Nú í vikunni var skrifað undir samning milli Kögunar hf. og Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (International Labour Organization - ILO) í Genf um smíði á nýju atkvæðagreiðslukerfi til notkunar á fundum stofnunarinnar.
Nánar
08.05.2003

Icelandair tekur webMethods í notkun

Nýverið var skrifað undir samning á milli Kögunar og Icelandair um kaup og innleiðingu á webMethods samþættingarhugbúnaði.
Nánar
10.04.2003

Íslensk erfðagreining notar Geranda

Í dag var skrifað undir samning milli Íslenskrar erfðagreiningar hf. (ÍE) og Kögunar hf., þess efnis að ÍE mun innleiða tímabókunarkerfið Geranda fyrir starfsmenn sína. Gerandi var settur upp til reynslu hjá ÍE í byrjun febrúar og hefur nú verið tekin ákvörðun um að ÍE mun innleiða kerfið víða í starfsemi sinni.
Nánar
21.03.2003

Kögun á CeBIT

Kögun tók þátt í CeBIT sýningunni í Hannover í Þýskalandi dagana 12. - 19. mars.
Nánar
10.03.2003

Kögun tekur þátt í CeBIT

Kögun hf. tekur þátt í CeBIT sýningunni sem er haldin í Hannover í Þýskalandi dagana 12. - 19. mars. CeBIT sýningin er sögð stærsta upplýsingatæknisýning í heimi og dregur að sér mörg hundruð þúsund manns árlega.
Nánar


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli