Yfir til valmyndar

2004

09.12.2004

Kögun styrkir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Í gegnum árin hefur það verið venja hjá Kögun eins og mörgum öðrum fyrirtækjum að senda viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum kort með jóla- og nýárskveðjum. Í ár var ákveðið að Kögun myndi styrkja góðgerðarstarf með peningagjöf í stað þess að senda út hin hefðbundnu jólakort. Í ár var styrkurinn veittur Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.
Nánar
07.12.2004

Kögun hf. og dótturfélag eignast allt hlutafé í Aston Baltic SIA

Kögun hf. og dótturfélag þess, Landsteinar Strengur hf., hafa keypt þriðjungshlut í lettneska fyrirtækinu Aston Baltic SIA í Riga í Lettlandi af Nordic Technologies Ltd. og eiga þar með allt hlutafé í fyrirtækinu.
Nánar
26.11.2004

Níu mánaða uppgjör Kögunar hf.

Stjórn Kögunar hf. (ICEX: KOGN) hefur á fundi sínum í dag, 26. nóvember 2004, samþykkt árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2004. Árshlutareikningur Kögunar hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess, Verk- og kerfisfræðistofunnar hf., Kögurness ehf., Ax hugbúnaðarhúss hf., Hugar hf. og Landsteina Strengs hf. Árshlutareikningurinn mun liggja frammi á skrifstofu félagsins að Lynghálsi 9, 110 Reykjavík.
Nánar   | Árshlutareikningur Jan-sept 2004
10.11.2004

Tilboð til hluthafa í Opin Kerfi Group hf.

Kögun hf., kt. 490389-2619, Lynghálsi 9, 110 Reykjavík, tilboðsgjafi, býður hluthöfum í Opin Kerfi Group hf., kt. 530891-1439, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, að kaupa hlutabréf þeirra í félaginu.
Nánar
15.10.2004

Kögun eignast 68,7% hlut í Opin Kerfi Group

Kögun hf. hefur þann 14. október fest kaup á 32,93% hlut í Opin Kerfi Group hf. Heildareign Kögunar hf. í Opin Kerfi Group hf. í kjölfar þessara viðskipta er 68,7%.
Nánar
18.08.2004

Kögun kaupir 35,77% hlutafjár Opin Kerfi Group hf.

Kögun hf. hefur keypt 35,77% hlutafjár Opin Kerfi Group hf (OKG). af Straumi Fjárfestingarbanka hf. Kaupin, sem greidd eru með reiðufé, fara fram á genginu 26,5 krónur á hlut. Fjámögnun kaupanna mun fara fram með útgáfu hlutabréfa í Kögun hf. og með lántöku. Stjórn Kögunar hf. mun nýta heimild í samþykktum félagsins til hlutafjáraukningar að nafnverði 22,5 milljónir.
Nánar
09.07.2004

Hagnaður Kögunar eykst verulega á 1. ársfjórðungi frá síðasta ári

Hagnaður Kögunarsamstæðunnar fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2004 varð 103 milljónir kr. en var á sama tíma 2003 47 milljónir kr. og jókst því um 56 milljónir kr. eða 119% milli ára.
Nánar
16.03.2004

Hagnaður nær þrefaldast milli ára

Hagnaður samstæðunnar eftir skatta jókst úr 117 mkr. árið 2002 í 337 mkr. árið 2003 eða um 188%.
Nánar   | Fréttatilkynning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli