Yfir til valmyndar

2005

21.12.2005

Húsasmiðjan festir kaup á webMethods samþættingarbúnaði

Húsasmiðjan hefur gert samning við Kögun hf. um kaup og innleiðingu á webMethods samþættingarbúnaði. webMethods búnaðurinn mun gegna lykilhlutverki í samtengingu innri upplýsingakerfa Húsasmiðjunnar auk þess að auðvelda rafrænar tengingar við viðskiptavini, birgja og aðra ytri aðila.
Nánar
15.12.2005

Samþætting upplýsingakerfa

Í nóvemberútgáfu Tölvumála, tímariti Skýrslutæknifélagsins, birtist grein eftir Bjarna Birgisson, framkvæmdastjóra Kögunar hf., þar sem hann fjallar um þróun í samþættingu upplýsingakerfa og mikilvægi þess í uppbyggingu upplýsingakerfa framtíðarinnar.
Nánar   | Samþætting upplýsingakerfa
14.12.2005

Kögun styrkir BUGL um árlegan jólakortastyrk

Í gegnum árin hefur það verið venja hjá Kögun eins og mörgum öðrum fyrirtækjum að senda viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum kort með jóla- og nýárskveðjum. Í ár var ákveðið að Kögun myndi styrkja góðgerðarstarf með peningagjöf í stað þess að senda út hin hefðbundnu jólakort. Í ár var styrkurinn veittur Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL)
Nánar
07.12.2005

Tilboð til hluthafa í Hands ASA

Í meðfylgjandi tilboðsskjali eru nánari upplýsingar um tilboð Kögunar hf. til hluthafa Hands ASA
Nánar   | Tilboðsskjal Hands ASA
07.12.2005

Kögun hf. kaupir bandarískt hugbúnaðarfyrirtæki

Kögun hf. hefur skrifað undir samning um kaup á bandarísku hugbúnaðarfyrirtæki. Samningurinn er með fyrirvara um áreiðanleikakönnun en gert er ráð fyrir að ganga frá endanlegum samningum í lok desember.
Nánar
16.11.2005

Níu mánaða uppgjör Kögunar hf. janúar til september 2005

EBITDA hagnaður Kögunar hf. tæpur einn milljarður og hækkar um 255% milli ára.
Nánar
11.11.2005

Kögun hf. eignast meirihluta í Hands ASA í Noregi - Yfirtökutilboð til annarra hluthafa í kjölfarið

Kögun hf. hefur tryggt sér 50,1% af heildarhlutafé norska hugbúnaðarfyrirtækinu Hands ASA í Noregi Hands ASA er skráð í kauphöllinni í Osló (HND) og mun Kögun hf. í kjölfarið gera yfirtökutilboð í öll útistandandi bréf í félaginu.
Nánar
28.10.2005

Kögun hf. á lista yfir 500 framsæknustu fyrirtæki í Evrópu

Kögun hf. er í 80 sæti á lista Europe's 500 Entreprenours for growth og telst þannig vera í hópi þeirra fyrirtækja í Evrópu sem eru í hvað mestum vexti.
Nánar
12.09.2005

Yfirmannaskipti hjá 932 deild flughers bandaríkjanna

Myndin sýnir Lt Col Brian T. Vaughn yfirmann 932 deildar flughers bandaríkjanna ásamt starfsfólki í hugbúnaðarmiðstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Lt Col Brian T. Vaughn hefur verið yfirmaður síðastliðinn 3 ár og fer nú til annara starfa í Evrópu. Kögun þakkar honum fyrir samstarfið og óskar honum alls hins besta í komandi framtíð.
Nánar
30.08.2005

Notkun Icelandair á samþættingartólum webMethods vekur eftirtekt

Árið 2003 festu Icelandair kaup á samþættingarhugbúnaðinum webMethods Fabric. Strax var hafist handa við að innleiða búnaðinn á þeim stöðum í rekstrinum þar sem ávinningurinn var talinn mestur. Nú rúmum tveimur árum síðar nær notkun búnaðarins til flestra þátta rekstrarins og hefur vakið verðskuldaða athygli hjá webMethods og fleirum.
Nánar
29.08.2005
- Opin kerfi

Kerfi A/S kaupir rekstur Commitment Data A/S í Danmörku

Kerfi A/S, dótturfélag Opin Kerfi Group hf., undirritaði í dag samning við Commitment Data A/S um kaup á rekstri félagsins, þar með taldar allar birgðir félagsins og tölvukerfi. Um 20 starfsmenn flytjast einnig frá Commitment Data til Kerfi A/S. Samningurinn tekur gildi strax í dag.
Nánar
19.08.2005

Sex mánaða uppgjör Kögunar hf. janúar til júní 2005

EBITDA hagnaður Kögunar hf. hækkar um 280% milli ára og er tæpar 700 mkr. Stjórn Kögunar hf. (ICEX: KOGN) hefur á fundi sínum í dag, 19. ágúst 2005, samþykkt árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar 2005 til 30. júní 2005. Árshlutareikningur Kögunar hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess, Verk- og kerfisfræðistofunnar hf., Kögurness ehf., Ax hugbúnaðarhúss hf., Hugar hf., Landsteina Strengs hf., Skýrr hf., Teymi hf. og Opin Kerfi Group hf.
Nánar   | Sex mánaða uppgjör Kögunar hf. janúar til júní 2005
09.08.2005

Prófanir á Link 16 á lokastigi

Nú í sumar hefur verið unnið að prófunum á s.k. Link 16 viðbót við Íslenska loftvarnakerfið í Keflavík. Vinna við verkið hófst á vegum Kögunar í september 2003 og er nú á lokastigi. Prófanir hafa gengið vel og gert er ráð fyrir að þeim ljúki í þessum mánuði. Morgunblaðið fjallar um málið í dag.
Nánar
30.06.2005

Kögun hf. stofnar félag um rekstur á Opin Kerfi Group hf.

Kögun hf. hefur í dag selt allan hlut sinn í Opnum Kerfum Group hf. til eignarhaldsfélagsins Opin Kerfi Group Holding ehf. Eigendur Opin Kerfi Group Holding ehf. eru auk Kögunar hf. Iða fjárfestingarfélag ehf. sem er í eigu Kaupfélags Eyfirðinga (KEA) og Straums Fjárfestingarbanka.
Nánar
20.05.2005

Þriggja mánaða uppgjör Kögunar hf.

Stjórn Kögunar hf. (ICEX: KOGN) hefur á fundi sínum í dag 20. maí 2005, samþykkt árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar 2005 til 31. mars 2005.
Nánar   | Árshlutareikning jan. til mar. 2005
13.04.2005

Kögun styrkir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Í gegnum árin hefur það verið venja hjá Kögun eins og mörgum öðrum fyrirtækjum að senda viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum kort með jóla- og nýárskveðjum. Í ár var ákveðið að Kögun myndi styrkja góðgerðarstarf með peningagjöf í stað þess að senda út hin hefðbundnu jólakort. Í ár var styrkurinn veittur Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.
Nánar
13.04.2005

Ársuppgjör Kögunar hf 2004

Rekstrarhagnaður Kögunar hf (EBITDA) nam 646 mkr. árið 2004. Í meðfylgjandi skrá má sjá ársuppgjör Kögunar hf.
Nánar


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli