2006
15.12.2006
Styrkveiting Kögunar til Geðhjálpar
Undanfarin ár hefur Kögun hf. haft það fyrir sið að í stað þess að senda viðskiptavinum og velunnurum sínum jólakort hefur fyrirtækið látið andvirðið renna til málefnis þar sem féð kemur að góðum notum, þörfin er rík og málefnið gott.Nánar
20.11.2006
- TeymiTeymi hf. skráð í Kauphöll Íslands
Teymi hf. er nýtt félag á hlutabréfamarkaði hér á landi en það var skráð á Aðallista í Kauphöll Íslands klukkan 10 í morgun. Útgefnir hlutir í Teymi hf. eru alls 2.728.200.000 að nafnverði. Teymi er fjarskipta- og upplýsingatæknifélag en í samstæðu þess eru Vodafone, Kögun, Skýrr, Securitas og EJS. Þá rekur Teymi einnig fjarskiptafyrirtækið P/F Kall í Færeyjum, SKO, BTnet og þjónustufyrirtækið Mömmu. Í stjórn Teymis eru: Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður, Þorsteinn M. Jónsson, Guðmundur Ólason, Matthías Imsland og Þór Sigfússon.Nánar | Skráningarlýsing Teymis
25.10.2006
Kögun hf. í sjöunda sæti á lista yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu.
Kögun hf. hefur verið útnefnt eitt af tíu framsæknustu fyrirtækjum Evrópu samkvæmt lista sem Europe’s 500 – Entrepreneurs for Growth gefa út á hverju ári en fyrirtækin sem valin eru inn á þennan lista eru þau sem þótt hafa sýnt hvað mesta aukningu í veltu og starfsmannafjölda frá árinu 2002.Nánar
03.10.2006
Sameining Kögunar og VKS
Eins og fram hefur komið í fréttum var sú ákvörðun tekin nýverið að skipta upp rekstri Dagsbrúnar hf. móðurfélags Kögunar og VKS í tvö félög, fjarskipta og upplýsingatæknifélagið Teymi hf. annars vegar og 365 hf. sem starfar á sviði fjölmiðla og afþreyingar hins vegar.Nánar
02.10.2006
Verkefnastjórnun fyrir breska herinn
Nýlega birtist í Viðskiptablaðinu viðtal við Kurt Van Meter, starfsmann Kögunar þar sem hann gerði grein fyrir verkefnastjórn sinni fyrir og með NAAFI.Nánar | NAAFI verkefnastjórnun
12.09.2006
Dagsbrún verði tvö félög, skráð í Kauphöll Íslands
Stjórn Dagsbrúnar hf. (ICEX:DB) samþykkti á fundi sínum 12. september 2006 að leggja til við hluthafafund að Dagsbrún verði skipt upp í tvö rekstrarfélög sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands. Félögin verði annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf. og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf. Stofnað verði sérstakt félag utan um eignir sem ekki falla að kjarnastarfsemi félaganna tveggja, í minnihlutaeigu hvors um sig, með aðkomu þriðja aðila. Jafnframt er stefnt að sölu fasteigna Dagsbrúnar bæði á Íslandi og í Bretlandi. Áætlað er að þessar aðgerðir lækki skuldsetningu félaganna tveggja um 13-14 milljarða króna.Nánar
11.09.2006
Kögun hf. gerir samning um rekstur fjarskiptastöðvar Bandaríska flotans í Grindavík
Bandaríski flotinn hefur, að undangengnu útboði, tekið tilboði Kögunar hf. í rekstur fjarskiptastöðvar flotans í Grindavík. “Útboðið sem fram fór fyrr í sumar er hluti af þeirri endurskipulagningu sem átt hefur sér stað í tengslum við brotthvarf Varnarliðsins. Tímasetningin er góð í ljósi breytinga á starfsemi Kögunar á Keflavíkurflugvelli en þarna tekst okkur að skapa áframhaldandi störf fyrir hluta þeirra starfsmanna sem sinnt hafa þjónustu við Varnarliðið á okkar vegum” segir Bjarni Birgisson hjá Kögun hf.Nánar
05.09.2006
Sex mánaða uppgjör Kögunar hf. janúar til júní 2006
EBITDA hagnaður Kögunar hf. var 826 mkr. og hækkar um 19% frá sama tímabili 2005.Nánar | Árshlutareikningur jan. - jún. 2006
09.06.2006
Hugur og Ax sameinast
Ákveðið hefur verið að sameina hugbúnaðarfyrirtækin Hug hf. og Ax hugbúnaðarhús hf. Hið sameinaða félag mun nefnast HugurAx. HugurAx verður eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með um 125 starfsmenn.Nánar
04.05.2006
Þriggja mánaða uppgjör Kögunar hf.
EBITDA hagnaður Kögunar hf. var 439 mkr. og hækkar um 30% frá sama tímabili 2005.Nánar | Árshlutareikningur jan.-mars 2006
23.03.2006
Kögun hf. gengur frá kaupum á SCS, Inc. í Kaliforníu
REYKJAVÍK / SANTA MONICA, CA – 20. mars 2006 – Kögun hf. hefur gengið frá kaupum á hugbúnaðarfyrirtækinu SCS, Inc. í Kaliforníu.Nánar
22.02.2006
Ársskýrsla Kögunar hf. 2005
Aðalfundur Kögunar hf. verður haldinn miðvikudaginn 15. mars í Þingsal 1 á Hótel Loftleiðum og hefst fundurinn kl 12.Nánar | Ársskýrsla Kögunar hf. 2005
21.02.2006
Ársuppgjör Kögunar hf. 2005
EBITDA hagnaður Kögunar sá mesti frá upphafi eða 1.425 milljónir kr. og hækkar um 121% á milli ára.Nánar | Uppgjör Kögunar hf. 2005
13.02.2006
Skýrr hf. kaupir meirihluta í EJS hf.
Skýrr hf., dótturfélag Kögunar hf., hefur skrifað undir samning um kaup á 58,7% eignarhlut í EJS hf.Nánar
04.01.2006
Og Vodafone gerir samning um kaup á webMethods búnaði
Nú fyrir skömmu var gengið frá samningum milli Og fjarskipta hf. og Kögunar um kaup á webMethods samþættingarbúnaði. Samið hefur verið við Kögun hf. um innleiðingu á búnaðinum á næstu mánuðum.Nánar