Fyrirtækið
Kögun sinnir ráðgjöf og hugbúnaðargerð á nánast öllum sviðum upplýsingatækni hér heima og erlendis.Megin starfssvið Kögunar eru þrjú í dag.
- Verkfræðideild - smíði, rekstur og ráðgjafaþjónusta við rauntímakerfi svo sem varnarkerfi eins og Íslenska Loftvarnakerfið, Fjarskiptastöðin í Grindavík, kerfiráða, stjórnkerfi í iðnaði, virkjunum og veitum.
- Hugbúnaðardeild - almenn verkefnavinna, samþættingarverkefni, hugbúnaðargerð, rafræn samskipti milli fyrirtækja og stofnana og sérlausnir.
- Ráðgjafadeild - ráðgjöf í: upplýsingatækni, verkefnastjórn, gæðamálum, bestun verkferla í hugbúnaðargerð og öryggismálum. Grunnþróun lausna, stærri nýsmíðaverkefni, vörumótun /vöruþróun /viðskiptaþróun og útboð. Hönnun, smíði og útfærsla stórra hugbúnaðarkerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem áhersla er lögð á hámarks rekstraröryggi, yfirgripsmiklar prófanir og trygga verkefnastjórnun.