Yfir til valmyndar

Lykilstjórnendur

 

Bjarni Birgisson, Framkvæmdastjóri
B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 1987, M.Sc. í tölvunarfræði frá Indiana University 1990. Starfaði sem forstöðumaður upplýsingaþjónustu Reiknistofu Bankanna 1990-1991. Hóf störf hjá Kögun hf. 1991. Starfaði við þróun Íslenska Loftvarnakerfisins á vegum Kögunar 1991-1995 og deildarstjóri hugbúnaðardeildar 1995-1998. Framkvæmdastjóri þróunardeildar frá 1998.

Jóhann Þór Jónsson, Fjármálastjóri
Viðskiptafræðingur af framleiðslusviði frá Háskóla Íslands 1993. Starfaði hjá Lexmark International í Ástralíu 1993-1994 og hjá Eimskipafélagi Íslands til ársins 2004. Hóf störf hjá Kögun hf. í nóvember 2004.

Gísli Ragnarsson, Markaðsstjóri
Stúdent frá Menntaskólanum við Tjörnina 1975. Viðskiptafræðingur, Cand Oecon, frá HÍ 1981. Stundaði MS nám í viðskiptafræði við HÍ 1999 - 2001. Starfaði með námi að ýmsum upplýsingatæknimálum hjá Reiknistofnun Háskólans. Hefur að námi loknu aðallega unnið á sviði sölu- og markaðsmála innan tölvugeirans. Hefur starfað hjá Kögun síðan árið 1999.

Marel Örn Guðlaugsson, Gæðastjóri
Stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1992. Útskrifaðist úr Tækniskóla Íslands með B.Sc. í vörustjórnun 1998. Hóf störf í janúar 1998 og starfaði fyrst sem umsjónarmaður verkefnadeildar. Hefur starfað sem gæðastjóri frá og með árinu 2000.

Hallgrímur G. Sigurðsson, Deildarstjóri Verkfræðideildar
Rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1983 og Dipl. Ing. gráða í rafmagnsverkfræði frá École Supérieure d?Electricité í París 1986. Starfaði við hönnun rafeindabúnaðar frá 1986 til 1987 og sem ráðgjafarverkfræðingur frá 1987 til 1999. Hóf störf hjá Kögun hf. 1999 sem deildarstjóri verkfræðideildar í Keflavík.

Þorsteinn Sverrisson, Deildarstjóri Hugbúnaðardeildar
Stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1984. BS í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 1988. B-vottun IPMA 2003. Hóf störf 1988, var fyrst forritari og síðar ráðgjafi í upplýsingatækni. Hefur frá árinu 2000 gegnt stöðu deildarstjóra hugbúnaðarsviðs ásamt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum.

Jón Bergþór Kristinsson, Deildarstjóri Ráðgjafadeildar
Rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1987 og cand.polyt gráða í rafmagnsverkfræði frá DTH í Danmörku 1989. Hóf störf hjá Kögun hf. 1990. Starfaði við þróun Íslenska Loftvarnakerfisins á vegum Kögunar 1990 -1995, tæknistjóri frá 1995-1998 og deildarstjóri hugbúnaðardeildar 1998-2000. Stöðvarstjóri Kögunar Keflavík frá 2000.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli