Yfir til valmyndar

Samstarfsaðilar

Samþætting hugbúnaðarkerfa og skyld svið

Eitt af megin starfsviðum Kögunar er þróun, ráðgjöf, sala og innleiðing á búnaði til samþættingar upplýsingakerfa, rafrænna viðskipta og ýmis konar rafrænna tenginga milli fyrirtækja. Til samstarfs hefur Kögun valið sér markaðsleiðandi fyrirtæki sem þróa hugbúnað á þessum sviðum.

webMethods

webMethods er samheiti yfir lausnir Software AG á sviði samþættingar hugbúnaðarkefa, þjónustumiðaðrar uplýsingatæknihögunar (SOA) og ferlamiðaðrar upplýsingavinnslu (Business Process Management).

webMethods er sá samþættingabúnaður sem langmestri útbreiðslu hefur náð hér á landi. Meðal notenda webMethods eru flest stærstu fyrirtæki landsins eins og Glitnir banki, Icelandair, Vodafone, Askar Capital, Sjóvá, Eimskip og Samskip.

Það hefur sýnt sig að fjárfesting í UT-högun sem byggir á webMethods skila sér afar ríkulega til baka í mun skilvirkara umhverfi þar sem innleiðing og þróun nýrra hugbúnaðarlausna verður til muna einfaldari og ódýrari.

Tibco

Tibco hefur á boðstólum hugbúnaðarlausnir fyrir samþættingu upplýsingakerfa, rafræn samskipti milli fyrirtækja, vefgáttir og skyld viðfangsefni.

Meðal notenda Tibco á Íslandi eru Síminn og Alþingi.

Microsoft

Kögun hefur á að skipa hugbúnaðarsérfræðingum sem hafa sérhæft sig á sviði lausna frá Microsoft. Má þar sérstaklega nefna Microsoft BizTalk og Microsoft SharePoint en hjá fyrirtækinu er mikil þekking á gagnagrunnum og þróunarhugbúnaði frá Microsoft.

IBM

Kögun hefur til margra ára verið viðurkenndur söluaðili fyrir Rational hugbúnað á Íslandi. Frá því IBM keypti Rational Software Corporation hefur Kögun verið samstarfsaðili IBM hér á landi hvað Rational hugbúnað varðar og frá árinu 2006 einnig hvað annan hugbúnað varðar eins og gagnagrunna og ýmsan vefhugbúnað.

IBM Rational er leiðandi í framleiðslu hugbúnaðar fyrir þá sem smíða hugbúnað. Þar á meðal er hugbúnaðar- og gæðakerfið Rational Unified Process, Rational Rose fyrir hönnun hugbúnaðar og Rational ClearCase/ClearQuest fyrir samstæðu- og breytingastjórnun. Auk þess að vera endursöluaðili fyrir IBM Rational hugbúnaðinn, veitir Kögun hf. alla þjónustu, þjálfun og ráðgjöf tengda honum til viðskiptavina.

Calypso

Kögun er samstarfsaðili bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Calypso Technology, Inc. Calypso þróar og selur hugbúnað fyrir viðskipti á verðbréfamörkuðum.
Notendur Calypso á Íslandi eru Kaupþing banki og Straumur fjárfestingarbanki.

Nintex

Kögun gerðist samstarfsaðili Nintex 2008.  Nintex er leiðandi fyrirtæki sem sérhæfir sig á lausnum sem eru framlenging við Microsoft hugbúnað.  Nintex er með yfir  500 viðskiptavini í 40 löndum.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli