Yfir til valmyndar

Stjórn

 

Árni Pétur Jónsson
Stjórnarformaður Kögunar ehf.
Viðskiptafræðingur (Cand.Oecon) frá Háskóla Íslands 1991.
Áður Forstjóri Tollvörugeymslunnar og framkvæmdastjóri markaðssviðs heildsölu Olís . Tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Baugi 2001, og tók síðar við stjórnun Hagar en Hagar reka verslanirnar Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams og Topshop, jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng og Grænt og vöruhótelið Hýsingu. Í ágúst 2005 var hann skipaður forstjóri Vodafone og í lok árs 2006 tók hann við stöðu forstjóra Teymis en innan Teymis eru eftirtalin fyrirtæki: Vodafone, Kögun, Eskill, Hugur/Ax, Landsteinar Strengur, Skýrr, Securitas og EJS. Auk þess rekur Teymi fyrirtæki á borð við P/F Kall, ISNIC, Mömmu, BTnet og lággjaldasímafélagið SKO.
Árni Pétur er stjórnarformaður hjá Húsasmiðjunni hf., Kreditkortum, Securitas,
Íslenska Birgðafélaginu ehf. og hjá Kjalarvogi ehf. Einnig er hann varamaður í stjórn Skýrr.

Ólafur Þór Jóhannsson
Viðskiptafræðingur (Cand.Oecon) frá Háskóla Íslands, 1996. Löggiltur endurskoðandi, 2000.
Ólafur vann hjá PricewaterhouseCoopers frá árinu 1996 og hefur verið meðeigandi síðan 2003. Frá árinu 2000 hefur hann gengt stöðu Aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, og kennt þar námskeið við BSc, MS og MBA deildir skólans. Ólafur gekk til liðs við Teymi sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs í nóvember 2006. Ólafur er varamaður í stjórn Skýrr og í stjórn EJS.

Örn Karlsson
Tölvunarfræðingur frá Tækniháskólanum í Luleå, Svíþjóð.
Fyrst kjörinn í stjórn Kögunar 1988 og hefur setið í stjórn félagsins frá upphafi, gengdi stöðu stjórnarformanns frá 2000-2006. Stofnaði ásamt fleirum Íslenska forritaþróun hf. árið 1983. Framkvæmdastjóri CODA á Íslandi sem síðar varð Baan á Íslandi 1997-2000. Stofnaði Span hf. ásamt fleirum árið 2000 og var framkvæmdastjóri þess þar til fyrirtækið var sameinað rekstri Kögunar hf. Hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan upplýsingatæknigeirans og komið að stofnun og setið í stjórn fjölmargra fyrirtækja í þeim geira.




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli