2004
04.03.2005
Ársreikningur 2004
Öll félög innan Kögunarsamstæðunnar skiluðu hagnaði á árinu. Rekstrarhagnaður (EBITDA) Kögunarsamstæðunnar nam 646 mkr. á árinu 2004 samanborið við rúmlega 238 mkr. árið áður og er þetta hækkun um 171%. Hagnaður samstæðunnar fyrir skatta var 533 mkr. en var 375 mkr. árið 2003 og er þetta hækkun um 158 mkr. eða 42%. Hagnaður ársins eftir skatta varð 453 mkr. en var 337 mkr. á árinu 2003 sem er hækkun um 34%. Hagnaður á hverja krónu hlutafjár nam 3,45 kr.Nánar | Ársreikningur 2004
26.11.2004
Árshlutareikningur jan.-sep. 2004
EBITDA Kögunar hf. eykst um 87 % milli ára Rekstrarhagnaður (EBITDA) samstæðunnar nam 276 mkr. á tímabilinu samanborið við tæplega 148 mkr. árið áður. Hagnaður samstæðunnar fyrir skatta varð 278 mkr. fyrstu níu mánuði ársins 2004 en var 304 mkr. á sama tímabili árið 2003. Þetta er lækkun um 26 mkr. eða tæp 9% sem skýrist m.a. af því að í þriðja fjórðungi 2003 var bókfærður söluhagnaður af hlutabréfum í Navision Software Ísland hf. og Ax Business Intelligence A/S að upphæð 174 mkr. Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins eftir skatta varð 227 mkr. og hagnaður á hverja krónu hlutafjár nam 1,90 kr. Öll félögin innan Kögunarsamstæðunnar skiluðu hagnaði á tímabilinu.Nánar | Árshlutareikningur jan.-sep. 2004
29.06.2005
Árshlutareikningur jan.-jún. 2004
Hagnaður Kögunar hf. eykst um 114% milli ára Hagnaður samstæðunnar fyrir skatta varð 211 mkr. fyrstu sex mánuði ársins 2004 en var 100 mkr. á sama tímabili árið 2003. Þetta er hækkun um 111 mkr. eða 111%. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins eftir skatta á hverja krónu hlutafjár nam 1,46 kr. en var 0,93 kr. á sama tímabili á síðasta ári.Nánar | Árshlutareikningur jan.-jún. 2004
26.05.2004
Árshlutareikningur jan.-mar. 2004
Hagnaður samstæðunnar fyrir skatta varð 103 mkr. á fyrsta ársfjórðungi 2004 en var 47 mkr. á sama tímabili árið 2003. Þetta er hækkun um 56 mkr. eða 119%. Hagnaður fjórðungsins á hverja krónu hlutafjár var 0,70 kr. en var 0,43 kr. á sama tímabili á síðasta ári.Nánar | Árshlutareikningur jan.-mar. 2004