Vörur
Kögun hefur hannað, þróað og sett á markað margar hugbúnaðarlausnir aðlagaðar íslenskum aðstæðum. Má þar nefna Virði, hugbúnað fyrir meðhöndlun skuldabréfa, Geranda, veflausn á skráningu vinnutíma og S5, sem er hugbúnaður hannaður til að búa til sérsniðnar veflausnir.
Á S5 byggja því margar lausnir sem Kögun hefur þróað og aðlagað að ólíkri starfsemi, má þar nefna S5 -Leikskólann, sem er hugbúnaður sem styður rekstur leikskóla og S5-Sölustjórann, sem er heldur utan um úthringi-söluherferðir, S5-Starfsfólk, sem er veflausn fyrir skráningu viðveru starfsmanna og S5- Áhættumat sem er hugbúnaðarkerfi fyrir áhættumat og stjórnun upplýsingaöryggis
S5 er að því leiti einstakur að hægt er að búa til sérsniðna lausn án mikils tilkostnaðar og hægt að spara mikla forritunarvinnu með því að nota S5 í stað þess að skrifa tölvukerfi frá grunni.
Í dag eru ótal lausnir byggðar á S5 í notkun hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum, s.s. hjá:
- Reykjavíkurborg
- Ríkislögreglustjóraembættinu
- Kópavogsbæ
- Vinnumálastofnun
- Þjóðskrá
- Útlendingastofnun
- Eimskip o.fl..
Kögun er umboðsaðili fyrir erlendan hugbúnað frá fyrirtækjum á borð við webMethods og Tibco sem eru leiðandi fyrirtæki í samþættingarhugbúnaði og IBM Rational sem sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum sem auka framleiðni og gæði í hugbúnaðargerð. Þar á meðal er hugbúnaðar- og gæðakerfið Rational Unified Process, Rational Rose fyrir hönnun hugbúnaðar og Rational ClearCase/ClearQuest fyrir samstæðu- og breytingastjórnun. Kögun er einnig umboðsaðili Calypso á Íslandi en Calypso sérhæfir sig í hugbúnaði fyrir fjármálaheiminn. Meðal notenda Calypso á Íslandi eru Kaupþing banki og Íslandsbanki.
Kögun hefur einnig þróað samþættingartengla fyrir Microsoft Dynamics NAV (Navision) og webMethods og selur þá um allan heim.