Yfir til valmyndar

Samþætting

Eitt af megin starfsviðum Kögunar er þróun, ráðgjöf, sala og innleiðing á búnaði til samþættingar upplýsingakerfa, rafrænna viðskipta og ýmis konar rafrænna tenginga milli fyrirtækja.

Fyrirtæki um allan heim  hafa verið  í vaxandi mæli verið að taka í notkun hugbúnað sem á íslensku er kallaður samþættingarhugbúnaður eða Enterprise Application Integtration (EAI), en sá hugbúnaður gerir fyrirtækjum kleift að tengja saman ólík og óskyld  hugbúnaðarkerfi sem þegar eru í notkun.  Þannig er hægt að tryggja að gögn geti flætt óhindrað milli ólíkra kerfa, bæði innan fyrirtækisins sem og milli fyrirtækja.  Með þessu móti sparast margskráningar upplýsinga inn í hin ýmsu kerfi og fyrirtækjum gert mögulegt að efla rafræna þjónustu við viðskiptavini sína.

Til samstarfs hefur Kögun valið sér markaðsleiðandi fyrirtæki sem þróa hugbúnað á þessum sviðum, þ.e. webMethods, Microsoft og Tibco Software.

 

  • webMethods
    webMethods býður meðal annars lausnir á sviði samþættingar upplýsingakerfa, rafrænna viðskipta, samskipta milli fyrirtækja og vefgátta. Til að byrja með nálgaðist webMethods markaðinn fyrir samþættingarlausnir með lausnum sem beindust frekar að tengingum milli fyrirtækja og byggði samþættingarhugbúnaður þeirra á miðlarahögun (Broker Architecture). Seinna kom webMethods svo með lausnir sem byggðu á gagnabrautum (Bus Architecture) og efldu sig mjög í samþættingu upplýsingakerfa innan fyrirtækja. Meðal notenda webMethods á Íslandi eru Flugleiðir, Eimskip, Samskip og Íslandsbanki.

 

  • Microsoft
    Microsoft hefur á boðstólum hugbúnaðarlausnir fyrir samþættingu upplýsingakerfa.  Um er að ræða tvær vörur:  BizTalk Server og SQL Server Integration Services (SSIS).  BizTalk er almennt samþættingartól sem hefur verið notað til að samþætta margskonar ólík kerfi.  SSIS er sérhæfðara tól sem ætlað er til að leysa verkefni í kringum Microsoft SQL Server.

 

  • Tibco
    Tibco hefur á boðstólum hugbúnaðarlausnir fyrir samþættingu upplýsingakerfa, rafræn samskipti milli fyrirtækja, vefgáttir og skyld viðfangsefni. Í upphafi kom Tibco aðallega að samþættingu upplýsingakerfa innan fyrirtækja og byggðu lausnir þeirra á samþættingu um gagnabrautir (Bus Architecture) með tækni eins "Publish - Subscribe". Á síðari árum hefur Tibco komið með á markaðinn samþættingarlausnir sem byggja á miðlara (Broker) og henta vel til að samþætta hugbúnaðarkerfi milli fyrirtækja. Meðal notenda Tibco á Íslandi eru Landssími Íslands og Alþingi.

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli