Yfir til valmyndar

Bestun verkferla

Sérhvert fyrirtæki er samsafn verkferla (á ensku Business Processes). Hvert skref í hverju ferli er ýmist unnið af hugbúnaðarkerfi eða starfsfólki en bæði hugbúnaðarkerfi og starfsfólk geta ýmist verið innan viðkomandi fyrirtækis eða hjá samstarfsaðila eins og viðskiptavini eða birgja. Þannig geta einstakir verkferlar teygt sig mjög víða bæði innan fyrirtækja og á milli þeirra og annarra samstarfsaðila.

Hverju fyrirtæki er það keppikefli að hvert verkferli sé sem skilvirkast. Skilvirkni er hægt að ná með því annars vegar að fella niður allar óþarfar aðgerðir og stytta þannig verkferla og hins vegar með því að auka sjálfvirkni þeirra. Aukin sjálfvirkni fæst með því að fækka handtökum en fjölga aðgerðum sem ýmis búnaður vinnur, hvort sem um er að ræða vél- eða hugbúnað.

Kögun hefur á að skipa reynslumiklum sérfræðingum á sviði bestunar verkferla. Í ráðgjöf þeirra er stuðst við sérhæfðan hugbúnað sem er í fremstu röð á sviði Business Process Automation.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli