Varnarkerfi
Kögun hf. hefur tekið að sér einhver viðamestu hugbúnaðarverkefni sem íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur ráðist í. Má þar nefna Loftvarnarkerfi Íslands eða Iceland Air Defence System (IADS) en árið 1990 hófst vinna Kögunar við kerfið. Iceland Air Defense System er langdrægt eftirlits- og flugstjórnarkerfi, sem vinnur úr gögnum frá fjórum FPS-117 ratsjám sem staðsettar eru í öllum fjórum landsfjórðungum.
Auk ratsjárgagna vinnur IADS kerfið úr gögnum sem berast því frá samsvarandi kerfum víðs vegar í Evrópu og Norður-Ameríku. Kerfið býður ennfremur upp á tengingar við ratsjárflugvélar og herskip á ferð við strendur landsins. Öll eftirlitsgögn sem kerfinu berast eru samsett í heildarmynd sem nær yfir allt Norður-Atlantshafið frá Bretlandi og Frakklandi í suðri allt til norðurheimskautssvæðisins í norðri.
Auk eftirlitsmöguleika, þá býður kerfið upp á öfluga aðstoð við orrustuflugvélar í hernaðarlegum tilgangi til auðkenningar á flugumferð í lofthelgi Íslands auk fjölbreyttra tengimöguleika til talsambands í lofti á legi og á jörðu niðri við nálæga og fjarlæga staði. Auk úrvinnslu ratsjárupplýsinga inniheldur kerfið búnað til samskiptastjórnunar, frá stöðum víðs vegar um Ísland, hvort sem um er að ræða hefðbundnar talrásir um símakerfi eða gervihnatta- og örbylgjurásir. Allur samskiptabúnaður og rásir eru undir stöðugu eftirliti sjálfvirks búnaðar sem fylgist með bilunum og sjálfvirk yfirfærsluvinnsla sér um að yfirfæra öll sambönd yfir á vararásir, ef bilana verður vart.
Kögun hf. hafði á árunum 1990 til 1995 allt að 20 verk- og tölvunarfræðinga í Bandaríkjunum í samvinnu við Hughes Aircraft Company og Computer Sciences Corporation við undirverktöku fyrirtækisins á kröfugreiningu, hönnun og smíði ýmissa þátta IADS kerfisins. Á þessum tíma öðlaðist fyrirtækið og starfsmenn þess mikla reynslu í þeim vinnubrögðum sem krafist er og beitt er við hönnun og smíði mjög stórra tölvu- og hugbúnaðarkerfa. Hefur fyrirtækið á þessum tíma meðal annars öðlast viðurkenningu af bandarískum hermálayfirvöldum og NATO sem verktaki við gerð og viðhald hugbúnaðarkerfa. Eftir að smíði IADS kerfanna lauk í Bandaríkjunum og kerfið var flutt til uppsetningar á Íslandi um mitt ár 1995, hefur Kögun hf. unnið með ofangreindum fyrirtækjum við uppsetningu og prófanir kerfanna á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt áframhaldandi þátttöku í undirbúningi reksturs og viðhalds kerfanna á Íslandi, tók fyrirtækið að sér viðamikla verkþætti í tengslum við lok formlegra prófa á kerfinu hér á landi. Þessum verkum var öllum lokið á tilsettum tíma og fór IADS kerfið í reynslunotkun á tilsettum tíma þann 1. maí 1997.
Sérstök hugbúnaðarmiðstöð, hönnuð til þess að geta sinnt forritun og prófunum á kerfinu er staðsett á Keflavíkurflugvelli. Þar er mögulegt að þróa áfram hugbúnað kerfisins og prófa í sérhæfðu umhverfi. Við gæðastjórn og allt verklag við framleiðslu og þjónustu er fylgt þeim aðferðum og stöðlum sem notaðar eru til viðmiðs við hugbúnaðargerð og smíði stórra tölvukerfa í Bandaríkjunum.
IADS kerfið er í stöðugri endurhönnun og eru verkefni Kögunar hf. af ýmsum toga þar sem lögð er áhersla á nána samvinnu við verktaka og stofnanir á vegum hersins víðs vegar í heiminum. Kögun hf. ber meðal annars ábyrgð á reglulegum úttektum kerfisins þar sem samskipti þess við herstjórnarkerfi Atlantshafsbandalagsins eru tekin út á formlegan hátt. Kögun hf. hefur með þessarri þátttöku unnið sér sess í þröngum hópi sérfræðifyrirtækja í sjálfvirkum samskiptum hernaðarkerfa í heiminum.
Ljóst er að með sífellt aukinni áherslu á eftirlits- og stjórnkerfi á kostnað árásar- og vopnakerfa í starfsemi Atlantshafsbandalagsins á íslenska loftvarnakerfið eftir að gegna mikilvægara hlutverki á komandi árum. Þekking og reynsla Kögunar hf. og starfsmanna fyrirtækisins á eftir að verða lykilatriði í þessari uppbyggingu á næstu árum.