Rekstrarþjónusta
Hjá Kögun eru starfandi sérfræðingar í rekstri tölvuneta. Kögun býður margskonar þjónustu á sviði reksturs og uppbyggingar tölvuneta, svo sem:
- Daglegan rekstur og notendaþjónustu
- Öryggismál og vírusvarnir
- Skipulagning og framkvæmd afritunar
- Ráðgjöf um uppbyggingu staðarneta og víðneta
- Ráðgjöf um fjarskiptamál og samskiptatækni
- Endursölu vélbúnaðar
- Kaupleigusamninga
Um Rekstrarþjónustuna
Starfsmenn Kögunar hafa góða þekkingu á helstu útgáfum Microsoft Windows, Exchange, SQL Server, Office og öðrum kerfis- og skrifstofuhugbúnaði frá Microsoft. Tveir starfsmenn Kögunar hafa hlotið MCP prófgráðu hjá Microsoft.