Upplýsingatækni
Við teljum á engan hallað þó sagt sé að Kögun hafi lengstan og farsælastan feril íslenskra ráðgjafarfyrirtækja af greiningu upplýsingakerfa, stefnumótun í upplýsingatækni ásamt umsjón með útboðum og framkvæmd verksamninga. Meðal viðskiptavina eru Hagkaup, Húsasmiðjan, ISAL, Varnarliðið, Skráningarstofan, Bílanaust, Landssíminn, Dómsmálaráðuneytið, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Alþingi, Mjólkursamsalan í Reykjavík og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum.Í gæðakerfi Kögunar eru verklagsreglur sem sérstaklega hafa verið skrifaðar til þess að styðja við verkefni af þessu tagi. Verklagsreglurnar hafa þróast í mörg ár og endurspegla langa reynslu ráðgjafa Kögunar í faginu.