Yfir til valmyndar

S5 Starfsfólk

S5 Starfsfólk er hugbúnaður sem heldur utan um bæði viðveru starfsmanna og upplýsingar sem þeim við kemur.  Starfsmenn geta á auðveldan hátt skráð sig eða stimplað sig inn í gegnum netið og einngi látið Outlook dagbókina uppfæra stöðu sína sjálfkrafa.

Hver kannast ekki við að leita að vinnufélaga um allt hús, hringja út um allt og það er slökkt á gsm símanum hans? Svo kemur í ljós að hann er á fundi með viðskiptavini uppi á næstu hæð! Eða í fríi, veikur eða staddur á ráðstefnu? Hvar býr hann Jón? Hvenær á forstjórinn afmæli? Hvernig lítur þessi Sigrún í markaðsdeildinni út? 

Hleypt hefur verið af stokkunum nýrri útgáfu af Viðveru sem hefur hlotið nafnið S5-Starfsfólk, þar sem allir sem það eiga og mega, hafa aðgang að öllum þessum upplýsingum og meira til og það allt á einum stað. Tvíverknaður verður óþarfur þar sem S5-Starfsfólk er tengdur Outlook dagbókum starfsmanna. Þetta er aðgengilegt kerfi til þess að halda utan um viðveru starfsmanna. Kerfið byggir á Microsoft Exchange Server 2000. Allir starfsmenn sem hafa vefskoðara geta komist í S5-Starfsfólk, hvar sem þeir eru staddir - innan skrifstofunnar eða utan.

Dæmi um eiginleika S5-Starfsfólks:

  • Hægt er að tengja S5-Starfsfólk við Exchange / Outlook dagbók sjálfkrafa.
  • Auðvelt er að fylgjast með hvar starfsmenn eru.
  • Mjög einfalt viðmót.
  • Hentar sérstaklega vel fyrir deildarskipt og dreifð fyrirtæki.
  • Haldið er utan um helstu upplýsingar um starfsmenn, svo sem síma, gsm, póstfang, heimili, kennitölu og fleira.
  • Myndir af starfsmönnum.
  • Sjálfvirk inn- og útskráning.
  • Auðvelt í uppsetningu.
  • Auðvelt að aðlaga.

 


 

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli