Yfir til valmyndar

S5 Leikskólinn

S5 Leikskólinn er hugbúnaðarkerfi til að halda utan um umsóknir um leikskólavist og rekstur leikskóla.

S5 Leikskólinn styður allt ferlið frá því að umsókn um leikskólavist er fyllt út á vefnum þangað til barn útskrifast úr leikskóla.  Kerfið reiknar dvalargjöld og skilar útreikningum í viðskiptabókhald. Kerfið reiknar einnig barngildi leikskóla og einstakra deilda innan leikskóla, m.a. í þeim tilgangi að meta álag og starfsmannaþörf.

S5 Leikskólinn er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Ekki þarf að setja upp sérstakan hugbúnað á tölvum notenda til að nota kerfið.

Í S5 Leikskólanum er meðal annars hægt að:

  • Fylla út umsóknareyðublað á vefnum
  • Skilgreina notendahópa og stýra aðgangi
  • Útbúa eyðublöð (s.s. dvalarsamninga), bréf og þess háttar sem fyllt eru sjálfkrafa út með upplýsingum úr kerfinu auk innsláttar
  • Sækja upplýsingar um börn og foreldra í Þjóðskrá
  • Halda utan um grunnupplýsingar um starfsfólk og leikskóla
  • Skrá og halda utan um nauðsynlegar forsendur reikningagerðar
  • Reikna út dvalargjöld og skila niðurstöðum í viðskiptabókhald
  • Reikna barngildi leikskóla og einstakra deilda innan leikskóla
  • Halda utan um og stýra flutningi barna á milli leikskóla
  • Skrá og halda utan um innkaup og eignir leikskólans (s.s. bækur, geisladiska og fleira sem notað er í hefðbundnu leikskólastarfi)
  • Halda utan um umsóknir um heimgreiðslur á vefnum
  • Stilla sjálfvirkar áminningar og tölvupóstssendingar (s.s. til foreldra við móttöku umsóknar)
  • Vista og halda utan um hvers kyns tölvutæk skjöl, svo sem ritvinnsluskjöl, ljósmyndir, hljóð, hreyfimyndir og skönnuð skjöl
  • Útbúa skýrslur til Hagstofu
  • Útbúa margvíslega og fjölbreytta lista og sýnir á gögn, svo sem umsóknarlista, biðlista, dvalarlista og fleira
  • Greina ýmsar tölfræðiupplýsingar út frá gögnum í kerfinu

 

Einfalt og sveigjanlegt
Kerfið er sveigjanlegt, sem gefur kost á auðveldum aðlögunum að sérþörfum, sem oft er nauðsynlegt gera þar sem verk eru ekki alltaf unnin á sama hátt í öllum leikskólum. Sem dæmi má nefna að einfalt er að breyta eða bæta við skráningarsvæðum og stýra hvaða upplýsingar eru birtar í sýnum. 
 

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.
                

Leiga og hýsing

Kögun býður sveitarfélögum að leigja aðgang að S5 Leikskólanum. Greitt er fast mánaðarlegt gjald fyrir hvern leikskóla sem nýtir sér kerfið. Enginn hugbúnaður er settur upp hjá sveitarfélaginu eða leikskólunum en hann keyrður gegnum Microsoft Internet Explorer vefvafra hjá notendunum. Umsóknareyðublað er sett upp á heimasíðu sveitarfélagsins og afgreiðsluferli umsókna hvers sveitarfélags um sig skilgreint í miðlæga kerfinu sem Kögun sér um að hýsa og reka.

Innleiðing og ráðgjöf

Hjá Kögun starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka
þekkingu á ráðgjöf í upplýsingatækni og gæðamálum. Þeir veita
aðstoð við innleiðingu kerfisins í samræmi við óskir og þarfir
einstakra viðskiptavina.

Nánari upplýsingar um S5 Leikskólann veita markaðsstjórar og
ráðgjafar Kögunar. Sé þess óskað býður Kögun upp á ítarlega
kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst við að halda utan um leikskólastarfið.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli