Yfir til valmyndar

Þjónusta

Samþætting

Upplýsingakerfi stærri fyrirtækja eru gjarnan byggð upp af mörgum og oft ólíkum hugbúnaðarkerfum sem hvert um sig styður ákveðna þætti í rekstrinum. Í dag eru jafnvel hugbúnaðarkerfi viðskiptavina og birgja og annarra samstarfsaðila skilgreind sem hluti af upplýsingakerfi fyrirtækja. Samþætting hugbúnaðarkerfa snýst um að tengja saman ólík upplýsingakerfi og gagnagrunna í rauntíma. Samþætting upplýsingakerfa er svið sem Kögun hefur skilgreint sem áherslusvið og er nú leiðandi fyrirtæki hér á landi á sviði samþættingar og búnaðar til rafrænna viðskipta. Frá upphafi hefur Kögun starfað í náinni samvinnu við bandarísku fyrirtækin webMethods og Tibco sem eru leiðandi á heimsvísu á sviði samþættingar. Mikill vöxtur hefur verið í samþættingarverkefnum og eru flest stærstu fyrirtæki landsins nú í hópi viðskiptavina Kögunar á þessu sviði. Kögun hefur m.a. þróað tengil fyrir Microsoft Dynamics NAV (Navision) til að tengjast öðrum upplýsingakerfum um Internetið. Þessi búnaður hefur verið seldur til viðskiptavina í Bandaríkjunum og víða um Evrópu.

Hugbúnaðargerð

Þjónusta og starfsemi tengd Íslenska Loftvarnarkerfinu hefur frá upphafi verið kjölfesta í starfsemi Kögunar. Síðastliðin ár hefur verið unnið að undirbúningi ýmissa verkefna sem snúa að endurnýjun búnaðar kerfisins. Frá því um mitt ár 2003 hefur Kögun unnið að smíði á svonefndri Link 16 viðbót við Íslenska Loftvarnakerfið í samvinnu við bandarísk-franska fyrirtækið Thales-Raytheon Systems. Um er að ræða eitt stærsta verkefni á sviði upplýsingatækni sem íslenskt fyrirtæki hefur unnið hin síðari ár.

Sérlausnir

Frá stofnun hefur helsta starfssvið fyrirtækisins verið smíði og þróun sérhæfðra upplýsingakerfa fyrir viðskiptavini sína. Fyrirtækið hefur í gegnum árin hannað og unnið mjög flókin upplýsinga- og stýrikerfi þar sem reynt hefur á nýjustu tækni og hugvit. Má þar nefna gerð kerfiráða, bæði fyrir hitaveitur og verksmiðjur og einnig gerð flókinna upplýsingakerfa sem byggja á stórum gagnagrunnum og miklum fjölda notenda.

Ráðgjöf 

Kögun býður upp á ráðgjöf í: upplýsingatækni, verkefnastjórn, gæðamálum, öryggismálum og bestun verkferla.

Hópvinnukerfi

Það er stefna Kögunar að bjóða heildstætt hópvinnukerfi sem byggir á stöðluðum lausnum, aðlögunum á þeim, sérþróuðum lausnum og ráðgjöf.

Fjármálakerfi

Undanfarinn áratug hafa starfsmenn Kögunar þróað mörg kerfi í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir á fjármálamarkaðnum. Innan fyrirtækisins er því til staðar talsverð þekking á þörfum og eðli fjármálamarkaðarins.

Rekstrarþjónusta

Hjá Kögun eru starfandi sérfræðingar í rekstri tölvuneta.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli