Yfir til valmyndar

Fjármálakerfi

Kögun er samstarfsaðili bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Calypso Technology, Inc. hér á landi. Calypso þróar og selur hugbúnað fyrir viðskipti á verðbréfamörkuðum. Calypso hugbúnaðurinn styður flestar vörur sem boðnar eru á fjármálamörkuðum nútímans hvort sem um er að ræða hlutabréf, skuldabréf, afleiður eða gjaldeyri og styður vörur sem samsettar eru úr m.a. framgreindum vörum. Hugbúnaðurinn sér um alla vinnslu frá viðskiptum til greiðslu og bókunar.

Notendur Calypso á Íslandi eru Kaupþing banki og Straumur fjárfestingarbanki.

Kögun veitir flestum bönkum hér á landi ýmsa hugbúnaðarráðgjöf á ýmsum sviðum eins og t.d. við samþættingu upplýsingakerfa, uppbyggingu innri vefkerfa, verkefnastjórn, hugbúnaðarprófanir og almenna ráðgjöf.

Meðal viðskiptavina Kögunar í fjármálageiranum á Íslandi eru: Íslandsbanki, Landsbankinn, Seðlabankinn, Straumur fjárfestingarbanki og Kaupþing banki.

 

 

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli