Hugbúnaðargerð
Krafan um aukin afköst við hugbúnaðarþróun og -viðhald verður sífellt mikilvægari í augum stjórnenda. Kostnaður fyrirtækja við hugbúnaðaþróun og –viðhald verður æ meiri auk þess sem í mörgum tilvikum reynist hann að stórum hluta ósýnilegur þar sem hann verður hluti af stórum kostnaðarliðum eins og upplýsingatæknimálum, tölvumálum eða öðrum slíkum kostnaðarþáttum. Yfirstjórn fyrirtækja á að gera kröfu til þess að þessi kostnaður sé sem gagnsæjastur og að á að einfaldan hátt megi gera grein fyrir kostnaðarlegri stöðu og framvindu þeirra hugbúnaðarverkefna sem í gangi eru hjá fyrirtækinu. Til að þetta sé hægt þurfa hugbúnaðardeildir fyrirtækja að ástunda fagleg og skilvirk vinnubrögð sem tryggja hámarksnýtingu þess sérhæfða starfsfólks sem að þessum málum vinnur og að unnið sé samkvæmt verklagi sem styður þessa kröfu.
Kögun hf. vinnur með tölvudeildum fjölda fyrirtækja og stofnana við að byggja upp afkastameira og skilvirkara verklag við hugbúnaðarþróun. Byggt er á viðurkenndum aðferðum eins og Rational Unified Process og eigin reynslu og verklagi á þessu sviði.
Kögun hf. hefur tekið að sér einhver viðamestu hugbúnaðarverkefni sem íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur ráðist í. Árið 1990 hófst vinna Kögunar við loftvarnarkerfi Íslands sem er eitt stærsta verkefni sem íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur tekið að sér.