Ráðgjöf
Ráðgjafadeild Kögunar sérhæfir sig í eftirfarandi greinum:
Ráðgjöf í upplýsingatækni
Kögun aðstoðar fyrirtæki við greiningu upplýsingakerfa, stefnumótun í upplýsingamálum og innkaup á tölvubúnaði. Hjá fyrirtækinu hefur verið byggð upp mikil reynsla á þessu sviði og þar er beitt verklagi sem hefur verið þrautreynt í nokkrum tugum verkefna fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins á undanförnum árum.
Verkefnisstjórn
Kögun tekur að sér verkefnisstjórn í verkefnum hjá viðskiptavinum sínum við endurnýjun og innleiðingu á nýjum tölvukerfum eða skipulagningu á upplýsingamálum og starfsemi tölvudeilda.
Ráðgjöf í gæðamálum
Kögun veitir ráðgjöf um gæðamál á sviði upplýsingatækni og tengdum sviðum. Fyrirtækið er sjálft í fararbroddi á sviði gæðamála á Íslandi og hefur þá sérstöðu meðal íslenskra ráðgjafarfyrirtækja að beita vottuðu verklagi við ráðgjöfina. VKS sem sameinað var Kögun 2006 er handhafi íslensku gæðaverðlaunanna 1999.
Ráðgjöf í öryggismálum
Kögun býður upp á ráðgjöf á sviði upplýsingaöryggismála. Sérstaklega með hliðsjón af breska staðlinum BS 7799 Information Security Management og væntanlegum íslenskum staðli: ÍST BS 7799 Stjórnun upplýsingaverndar.
Ráðgjöf í bestun verkferla
Sérhvert fyrirtæki er samsafn verkferla (e. Business Processes). Hvert skref í hverju ferli er ýmist unnið af hugbúnaðarkerfi eða starfsfólki en bæði hugbúnaðarkerfi og starfsfólk geta ýmist verið innan viðkomandi fyrirtækis eða hjá samstarfsaðila eins og viðskiptavini eða birgja. Þannig geta einstakir verkferlar teygt sig mjög víða bæði innan fyrirtækja og á milli þeirra og annara samstarfsaðila.
Hverju fyrirtæki er það keppikefli að hvert verkferli sé sem skilvirkast. Skilvirkni er hægt að ná með því annars vegar að fella niður allar óþarfa aðgerðir og stytta þannig verkferla og hins vegar með því að auka sjálfvirkni þeirra. Aukin sjálfvirkni fæst með því að fækka handtökum en fjölga aðgerðum sem ýmis búnaður vinnur, hvort sem um er að ræða vél- eða hugbúnað. Kögun hefur á að skipa reynslumiklum sérfræðingum á sviði bestunar verkferla. Í ráðgjöf þeirra er stuðst við sérhæfðan hugbúnað sem er í fremstu röð á sviði Business Process Automation.