Yfir til valmyndar

Verkefnastjórn

Kögun hefur mikla reynslu af stjórnun verkefna í þróun og innleiðingu upplýsingakerfa. Stundum er um að ræða verkefni þar sem Kögun hefur séð um undanfarandi greiningu og val búnaðar. Kögun hefur marga reynda og hæfa verkefnisstjóra og verklagsreglur í gæðakerfi Kögunar styðja sérstaklega við verkstjórnarferlið. Fyrirtæki eru sífellt að gera sér betur grein fyrir mikilvægi góðrar verkstjórnar í verkefnum á sviði upplýsingamála þar sem fagleg vinnubrögð skipta oft sköpum um niðurstöðu verksins. Fjölmargir verkefnistjórar Kögunar hafa hlotið vottun frá Alþjóða verkefnisstjórnunarsambandinu (International Project Management Association eða IPMA).
Segja má að tilgangurinn með góðri verkstjórn sé þríþættur:

  • Að tryggja að virkni og gæði búnaðarins sem verið er að smíða eða innleiða uppfylli væntingar og kröfur.
  • Að verkefnið gangi eftir verkáætlun og ljúki á réttum tíma.
  • Að kostnaður víki sem minnst frá því sem gert var ráð fyrir.

Hlutverk verkefnastjóra er m.a. eftirfarandi:

  • Annast áætlanagerð í upphafi verks.
  • Að sitja verkfundi og rita fundargerðir verkfunda.
  • Að halda utan um verkskjöl og skrár.
  • Að sjá um að spurningum um útfærslu kerfis sé svarað fljótt og vel.
  • Að fylgjast með að kerfið sé útfært samkvæmt þeim tæknilegu forsendum sem liggja til grundvallar.
  • Að fylgjast með framvindu verksins með hliðsjón af verkáætlun.
  • Skoðun og viðtaka verkþátta.
  • Skipulagning og framkvæmd kerfis- og viðtökuprófana.


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli