Yfir til valmyndar

Upplýsingaöryggi

Hér er fjallað um öryggi upplýsinga út frá breska staðlinum BS779 Information Security Management gefnum út af breska staðlaráðinu (Bristish Standard Institute). Hann hefur verið þýddur yfir í íslenskan staðal ÍST ISO/IEC17799 Upplýsingavernd. Sé rétt haldið á upplýsingaöryggismálum er hægt að:

  • draga úr líkum á því að orðspor fyrirtækis bíði hnekki, hagnaðarvon minnki eða vaxtarmöguleikar skerðist vegna taps á viðkvæmum upplýsingum,
  • draga úr álithnekki eða tapi á viðskiptum vegna þess að viðkvæm gögn samstarfsaðila/viðskiptavinar töpuðust,
  • auka trúnað í samstarfi,
  • einfalda skipti á viðkvæmum upplýsingum við þriðja aðila, án þess að áhætta aukist.

Þetta er mikilvægt öllum þeim sem er umhugað um öryggi viðkvæmra upplýsinga, á hvaða formi sem er. Sérstaklega er því ætlað að höfða til stjórnarmanna, yfirmanna, endurskoðenda og stjórnenda tölvukerfa. Hér á síðunni er hægt að finna meiri upplýsingar um staðalinn og það sem þarf að hafa í huga og varast til að koma í veg fyrir tjón.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli