Hlutverk
ÍST ISO/IEC17799 Information Security Management leggur til stjórnunaraðferðir sem fyrirtæki geta notað til að meta og styrkja stöðu öryggismála.
Í sumum tilfellum er nauðsynlegt að beita tæknilegum lausnum, en stjórnunarhættir eru ekki síður mikilvægir og oftast skipta þeir meira máli. Nokkur mikilvæg atriði sem leiða til góðrar stöðu öryggismála og eru dekkuð í ÍST ISO/IEC17799:
- Stjórnunaraðferðir sem einblína á öryggi.
- Vel skilgreind ábyrgðarsvið varðandi öryggisþætti innan fyrirtækis.
- Vel skilgreint hlutverk eftirlitsaðila (endurskoðanda) sem nær til upplýsingaöryggis í víðustu merkingu, en ekki eingöngu tæknilegra.
- Góður skilningur á því hve nauðsynlegt er að deildir, stjórnendur, tæknifólk, notendur, viðskiptavinir og samstarfsaðilar fái vitnesku um öryggiskröfur og að skipting ábyrgða þarf að koma fram í samningum, starfslýsingu, skriflegum leiðbeiningum og á öðrum formi, sem þörf er á.
- Mikilvægi þess að skilja og viðurkenna gildi upplýsinga fyrir rekstur fyrirtækisins.
- Mikilvægi öryggisvitundar, þjálfunar og stöðugrar endurskoðunar á öryggismálum sem grundvallarþáttar í starfsemi fyrirtækis.