Heilleiki gagna
Heilleiki gagna er ekki alltaf tengdur við upplýsingaöryggi, sérstaklega í augum almennings. Að vernda heilleika gagna þýðir að tryggja að vistaðar upplýsingar séu réttar og að ekki hafi verið átt við þær á nokkurn hátt umfram það sem ætlast var til. Þar með nær þessi þáttur til hugbúnaðar, þ.e. að hann virki eins og til er ætlast.
Með því að eiga við gögn og breyta þeim, geta upplýsingar um tiltekin einstakling breyst frá því að vera jákvæðar og uppbyggilegar í neikvæðar. Vandamálið er að óheiðarlegur starfsmaður getur gert margar smáar breytingar á löngum tíma. Slíkar breytingar er nær ómögulegt að uppgötva nema eftirlit með gögnum sé þess betra.
Dæmi um þetta var forritarinn sem lét færa 10 sent í hvert sinn sem tölur voru rúnaðar í dollar, inn á reikning tilbúins viðskiptavinar, sem átti að vera sá síðasti í stafrófinu. Óheppni forritarans var að einstaklingur með nafn aftar en hinn tilbúni viðskiptavinur, stofnaði reikning í bankanum og upp komst um allt þegar hann fór að fá óumbeðnar færslur inn á reikninginn sinn.