Schengen upplýsingakerfið
Kögun hefur þróað hugbúnaðarkerfi fyrir umsýslu vegabréfsáritana og samstarf lögregluyfirvalda á Schengen svæðinu. Kerfin voru þróuð fyrir íslensk stjórnvöld, en um þessar mundir er Kögun að þróa sams konar hugbúnaðarkerfi fyrir yfirvöld í Liechtenstein.
Árið 2001 gerðist Ísland aðili að Schengen samningnum, en með honum urðu Schengen löndin að einu landamærasvæði og komið var á sameiginlegum vegabréfsáritunum.
Strangar kröfur eru gerðar til hugbúnaðarkerfa sem uppfylla eiga skyldur Schengen samningsins, s.s. til áreiðanleika, viðmóts, gagnaöryggis og persónuverndar. Litlum ríkjum hefur reynst erfitt að mæta þessum kröfum, sem reynst geta kostnaðarsamar í framkvæmd. Lausnirnar sem Kögun þróaði fyrir íslensk stjórnvöld hafa vakið athygli fyrir að mæta þessum ströngu kröfum en á sama tíma vera sniðnar að þörfum lítilla þjóða.
Eftirfarandi kerfi voru þróuð af Kögun og sett upp á Íslandi í því skyni að uppfylla kröfur Schengen samstarfsins:
- SIRENE kerfið fyrir Ríkislögreglustjóra. Kerfið heldur utan um mál er tengjast lögreglusamvinnu innan Schengen landa og sér um samskipti við svonefndar SIRENE skrifstofur
- VISION kerfið fyrir Útlendingaeftirlitið. Tilgangur kerfisins er að gera VISION skrifstofunni á Íslandi mögulegt að hafa samráð við aðrar VISION skrifstofur vegna afgreiðslu á vegabréfsáritunum inn á Schengensvæðið
- VIS kerfið, sem notað er til skráninga á umsóknum og útgáfu vegabréfsáritana
- VIS Mail, sem er nýtt kerfi notað til samskipta milli VISION skrifstofa og leysa mun VISION kerfið af hólmi
Ofangreindar lausnir fyrir Útlendingaeftirlitið eru þróaðar í hugbúnaðarkerfinu S5, en S5 er hugbúnaður hannaður til að búa til sérsniðnar veflausnir. S5 er byggður upp á stökum einingum, sem raða má saman og búa þannig til sérsniðna hugbúnaðarlausn án mikils tilkostnaðar. Með því móti er hægt að spara mikla forritunarvinnu í stað þess að skrifa tölvukerfi frá grunni.
Kögun hefur einnig annast ráðgjöf við þróun og innleiðingu íslenska hluta ISIS kerfisins, sem er notað fyrir landamæravörslu og skráningu á eftirlýstum einstaklingum og munum. Kerfið tengist miðlægum gagnagrunni Schengen ríkjanna (SIS) sem staðsettur er í Strasbourg í Frakklandi. Kögun annast nú sams konar ráðgjöf fyrir yfirvöld í Liechtenstein.