Yfir til valmyndar

S5 Sölustjóri

S5 Sölustjóri er notendavæn hugbúnaðarlausn sem heldur utan um söluherferðir og vísbendingar um sölutækifæri.  

S5 Sölustjóri er  sveigjanlegt kerfi sem gefur kost á að aðlaga ferli sölu- og úthringiherferða að verklagi einstakra fyrirtækja.  Í kerfinu er á skipulegan hátt hægt að halda utan um stöðu söluherferða og vísbendinga, samskipti við viðskiptavini og niðurstöður úthringinga. Þannig er tryggt að sölustjórar og sölumenn hafi ávallt góða yfirsýn yfir sölumál fyrirtækisins og geti á hverjum tíma séð stöðu einstakra mála í söluferlinu.

Kerfið er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum.

Í S5 Sölustjóra er meðal annars hægt að:

  • Stofna sölu- og úthringiherferðir og stýra ferli þeirra
  • Stýra ferli vísbendinga um sölutækifæri og útdeila þeim á starfsmenn
  • Halda utan um samskipti við viðskiptavini í samskiptasögu og öll inn- og útsend tölvupóstsskeyti vegna söluherferða og vísbendinga
  • Senda tölvupóst með tilkynningum, fréttabréfum og þess háttar á valda markhópa
  • Stilla sjálfvirkar áminningar og þannig koma í veg fyrir að mál tefjist að óþörfu eða dagi uppi
  • Flokka viðskiptavini í markhópa
  • Tengja vísbendingar um sölutækifæri líkum á viðskiptum/samningi
  • Skoða margvísleg yfirlit og sýnir á gögn
  • Útbúa og greina ýmsar tölfræðiupplýsingar og árangursvísa um söluherferðir og vísbendingar
  • Skilgreina notandahópa og notendaaðgang
  • Halda utan um hvers kyns tölvutæk fylgiskjöl, þ.m.t. leiðbeiningar og gátlista
  • Tengja kerfið við vefgátt þannig að fyrirspurnir og ábendingar sem skráðar eru á vef fyrirtækisins verða sjálfkrafa að máli í kerfinu
  • Senda endurgjöf vegna innsendra fyrirspurna og ábendinga af vef

Ávinningur af því að nota S5 Sölustjóra er meðal annars:

  • Betra og skilvirkara skipulag sölumála og meira samræmi í vinnubrögðum
  • Betri yfirsýn yfir sölumál fyrirtækisins
  • Betri og skjótari þjónusta við viðskiptavini
  • Markvissari greining vísbendinga og auðveldari stjórnun þeirra
  • Auðveldari og ódýrari þjálfun starfsfólks
  • Auðvelt er að aðlaga kerfið að sérþörfum einstakra fyrirtækja og þar með sníða ferli söluherferða og vísbendinga að söluferli viðkomandi fyrirtækis
  • Kerfið er einfalt í uppsetningu, sveigjanlegt og auðvelt í viðhaldi
  • Kerfið býður upp á margvíslegar sýnir á gögn og tölfræðiúrvinnslu og veitir þannig góða yfirsýn yfir sölumál fyrirtækisins hverju sinni og árangur markaðsherferða
  • Kerfið er til bæði á íslensku og ensku


Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.

 

Ummæli viðskiptavinar um S5 Sölustjórann


“Við erum himinlifandi með kerfið og er það skila okkur miklum ávinningi”


Trausti Harðarson, forstjóri Securitas

 

Innleiðing og ráðgjöf
Hjá Kögun starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á upplýsingatækni og gæðamálum. Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina.

Nánari upplýsingar um S5 Sölustjóra veita markaðsstjórar og ráðgjafar Kögunar. Sé þess óskað býður Kögun upp á ítarlega kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst fyrirtækjum og stofnunum við að halda skipulega utan um sölu- og úthringiherferðir og þannig auka gæði vöru og þjónustu.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli