Yfir til valmyndar

Ráðgjöf í upplýsingaöryggi

Hjá Kögun starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á ráðgjöf í stjórnun upplýsingaöryggis.  Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins og framkvæmd áhættumats í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina. 

Kögun bíður fyrirtækjum og stofnunum upp á fjölþætta ráðgjöf í stjórnun upplýsingaöryggis. Má þar nefna ráðgjöf og aðstoð við eftirfarandi þætti:

  • Öryggisúttektir til að meta stöðu öryggismála
  • Mótun öryggisstefnu
  • Áhættumat og áhættustjórnun
  • Gerð öryggishandbóka. Kögun býður upp á mát af myndrænni öryggishandbók, sem auðvelt er að aðlaga að starfsemi fyrirtækja
  • Gerð neyðaráætlana og áætlana um rekstrarsamfellu
  • Innleiðing stjórnkerfis upplýsingaöryggis
  • Undirbúningur og ráðgjöf við vottun skv. alþjóðastaðlinum ÍST ISO/IEC 27001

Frekari upplýsingar um ráðgjafaþjónustu Kögunar



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli