Yfir til valmyndar

S5 Úttektir

S5 Úttektir er notendavænt og heildstætt hugbúnaðarkerfi til þess að skipuleggja og halda utan um framkvæmd og eftirfylgni gæða- og öryggisúttekta.

Kerfið nýtist meðal annars fyrirtækjum og stofnunum sem vinna eftir ferlum gæðakerfis eða öryggisstjórnkerfis, sinna eftirliti eða eru í eftirlitsskyldri starfsemi. Kerfið er hentugt til þess að halda utan um hvers kyns úttektir þar sem krafist er staðfestingar á að gæði og öryggi vöru og þjónustu séu í samræmi við fyrirfram skilgreindar kröfur og reglur.

Veflausn
S5 Úttektir er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Viðmót kerfisins er notendavænt og auðvelt er að læra á það. Kerfið uppfyllir kröfur gæðastaðalsins ÍST ISO/IEC 9001 og öryggisstaðalsins ÍST ISO/IEC 27001 og nýtist bæði við innri úttektir sem og viðhaldsúttektir vottunarfyrirtækja.

 

Í S5 Úttektum er meðal annars hægt að:

  • Útbúa úttektaáætlanir fyrir starfsemina í heild eða ákveðna þætti hennar
  • Útbúa gátlista vegna undirbúnings úttekta
  • Útbúa úttektarskýrslur sem innihalda niðurstöður úttekta
  • Skrá og halda skipulega utan um frávik og athugasemdir sem fram koma við úttektir
  • Fylgja eftir nauðsynlegum úrbótum/aðgerðum vegna frávika og athugasemda
  • Stilla sjálfvirkar áminningar til að fyrirbyggja að afgreiðsla úttekta og frávika/athugasemda tefjist að óþörfu eða dagi uppi
  • Útbúa nýjar úttektaáætlanir með því að afrita eldri áætlanir og síðan uppfæra á fljótlegan hátt
  • Útbúa og greina ýmsar tölfræðiupplýsingar um úttektir, úrbætur, frávik og athugasemdir

Helstu kostir S5 Úttekta eru:

  • Betra og skilvirkara skipulag á úttektum (og eftirlitsverkum) og virkara gæðakerfi
  • Góð yfirsýn yfir bæði fyrirliggjandi og yfirstaðnar úttektir
  • Möguleikar á ítarlegri greiningu frávika og athugasemda
  • Markvissari stjórnun úrbóta/aðgerða í kjölfar úttektar
  • Auðvelt er að aðlaga kerfið að sérþörfum einstakra fyrirtækja
  • Kerfið er einfalt í uppsetningu og auðvelt í viðhaldi
  • Kerfið býður upp á margvíslegar sýnir á gögn, tölfræðiúrvinnslu og veitir greinargott yfirlit um stöðu gæða- og öryggismála fyrirtækisins hverju sinni
  • Kerfið er til bæði á íslensku og ensku

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.

Innleiðing og ráðgjöf
Hjá Kögun starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á ráðgjöf  í gæðamálum og stjórnun upplýsingaöryggis. Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins og framkvæmd úttekta í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina.

Nánari upplýsingar um S5 Úttektir veita markaðsstjórar og ráðgjafar Kögunar. Sé þess óskað býður Kögun upp á ítarlega kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst fyrirtækjum og stofnunum við að halda skipulega utan um úttektir og þannig auka gæði vöru og þjónustu og öryggi starfseminnar.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli