Yfir til valmyndar

S5 Sérlausnir

Hægt er að spara talsverða forritunarvinnu með því að nota S5 í stað þess að skrifa kerfi frá grunni.

Hægt er nýta S5-viðmótið og S5-gagnagrunninn. Í framhaldi er hægt að forrita viðbætur eins og vefsíður, vefþjónustur, "stored procedures", biðlara o.s.frv. sem sjá um það sem ekki er hægt í S5. Þessi leið hefur verið farin til þess að þróa ýmsar sérlausnir í S5 eins og Leikskólakerfi, Leyfisveitingakerfi, Vefumsóknarkerfi og fleiri kerfi.

 

Eftirfarandi viðbætur er hægt að forrita ofan á S5.

  • Vefsíður sem forritaðar eru sérstaklega er hægt að birta sem sýn í S5. Einnig er hægt að opna þær með því að smella á hlekk á spjaldi eða í sýn.
  • Hægt er að forrita vefþjónustur sem kallað er á við stöðubreytingar í S5. Vefþjónustur geta t.d. séð um að samskipti við önnur kerfi.
  • "Stored procedures" er hægt að kalla á við stöðubreytingar. Þær geta séð um ýmsa sjálfvirkni, villutékk eða einhverjar breytingar í grunninum.
  • Hægt er að forrita ýmsar þjónustur (services) eða þræla sem keyra reglulega á miðlaranum og uppfæra gögn eða skrár.
    Hægt er að forrita biðlara ef vefviðmót dugar ekki til.

 

S5



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli