Yfir til valmyndar

S5 Verkbeiðnir

Þegar sett er upp þjónustuborð þarf ferli mála, sem koma til úrlausnar, að vera skýrt. Með S5 er sett upp nákvæmt ferli úrlausnarmála. Tilgreint er hvert málum er beint til úrlausnar, tímamörk þeirra og íhlutun stjórnenda er skilgreind í reglum þjónustuborðs S5.

Skýr ábyrgð

Ábyrgðarmenn eða stjórnendur fá mál til umfjöllunar og eða úrlausnar og beina þeim áfram til starfsmanna eftir því sem við á. Þetta tryggir skýra ábyrgð og að öll úrlausnarmál fái niðurstöðu. Þannig er viðskiptavinum eða starfsmönnum tryggt það þjónustustig sem þeim ber. 

Alls staðar aðgengilegt

Þar sem S5 er veflausn komast notendur í kerfið alls staðar, hafi þeir aðgang að Internetinu. Þetta býður upp á að starfsmenn (eða viðskiptavinir) slái sjálfir inn sínar þjónustubeiðnir, henti það. Þeir þurfa ekki að vita hvert beina skal þjónustubeiðnum. S5 sér um það að þær fari allar í réttan farveg.

Yfirsýn

Stjórnendur og verkefnisstjórar hafa á hverjum tíma skýra yfirsýn um verkefni í gangi og stöðu mála.

 

S5



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli