Yfir til valmyndar

S5 Verkefnisstjórnun

Upplagt er að nota S5 í verkefnisstjórnun. Verkefnisstjórar fá aðgang til þess að skrá verkefni sem þeir eru verkefnisstjórar yfir. 

Fyrir hvert verkefni geta verkefnisstjórar skilgreint mismunandi flokka, úrlausnaraðila, samþykktaraðila og aðra starfsmenn á einfaldan hátt. Þegar verkefni hefur verið stofnað í lausninni geta þeir starfsmenn sem hafa verið skráðir á verkefnið stofnað verkbeiðnir á viðkomandi verkefni. Starfsmenn sjá aðeins verkbeiðnir í verkefnum sem þeir eru starfsmenn í.

Tenging við tímaskráningarkerfi

Hægt er að tengja tímaskráningakerfi eins og S5 Starfsfólk við lausnina. Gefið er upp númerið á beiðninni þegar tímar eru skráðir. Þegar beiðni er opnuð er hægt að sjá hvað margir tímar hafa verið skráðir á viðkomandi beiðni. Einnig hægt að fá yfirlit yfir áætlaða tíma og rauntíma í sýnum.

 

S5



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli