S5 Viðskiptatengsl
Í S5 hægt að útbúa lausnir til þess að skrá fyrirtæki og tengiliði. Hægt er að tengja tengiliði við önnur gögn í S5.
Tölvupóstsamskipti sem tengiliður á við starfsmenn fyrirtækisins er einnig aðgengilegur á spjaldi viðkomandi. Allar upplýsingar um viðkomandi tengiliði eru þannig aðgengilegar.
Haldið utan um vensl
Í S5 er hægt að skrá allskonar hluti eins og verkefni, ráðstefnur, þjónustubeiðnir, tengiliði, fyrirtæki o.s.frv. Í S5 er þetta kallað borð. Í S5 er t.d. hægt að skilgreina vensl frá borðinu Tengiliður yfir á borðið Námskeið. Ef það er gert er það leikur einn að opna eitt námskeið og bæta tengiliðum á námskeiðið. Á sama hátt er hægt að opna einn tengilið og útfrá honum setja hann á ákveðið námskeið. Þegar þetta er skráð inn fæst góð yfirsýn yfir allt sem tengist viðkomandi tengilið. Hvaða lausnir er hann með? Hvaða samninga? Á hvaða ráðstefnur og námskeið hefur hann komið á hjá okkur? Hverjir voru aðrir á þessu námskeiði?
Hvað með útprentun?
Hægt er að skilgreina mát í Word og prenta það út með gögnum sem eru á spjaldinu. Á sama hátt er hægt að skilgreina mát fyrir sýnir til þess að prenta út gögn sem koma fram í sýnum. Á markaðnum eru einnig til ýmis tól til þess að útbúa skýrslur sem notendur geta prentað út t.d. Reporting Services. Þar sem allt er geymt í gagnagrunni eru ótakmarkaðir möguleikar á allskonar skýrslum og fyrirspurnum sem hægt er vinna út úr þeim gögnum sem skráð eru í gagnagrunnin.