Yfir til valmyndar

Skjalagáttin

Skjalagáttin er alhliða lausn í rafrænum viðskiptum milli fyrirtækja yfir Internetið. Gáttin tengir fyrirtæki saman og gerir þeim m.a. kleift að skiptast rafrænt á skjölum milli tölvukerfa á öruggan hátt.


Auknar kröfur til fyrirtækja og stofnana um að auka rafræna þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila, gerir öruggan gagnaflutning yfir Internetið gríðarlega mikilvægan. Skjalagáttin getur nýtt rafrænar undirskriftir til að upprunavotta sendingar auk þess sem dulkóða má allar  gagnasendingar. Gáttin getur einnig sent sjálfvirka staðfestingu á móttöku gagna og auðvelt er að rekja feril skjala í vefviðmóti Skjalagáttarinnar.

 

 

Rafrænt tenginet samstarfsaðila

  • Þegar fyrirtæki sjá sjálf um að tengjast inná tölvukerfi samstarfsaðila sinna vilja tenginetin oft verða flókin og umfangsmikil, kostnaðarsöm og viðhald erfitt. 

Skjalagáttin

  • Með því að tengjast Skjalagáttinni verður til miðlæg tengistöð sem allir samstarfsaðilar geta tengt sig inná og með einföldum hætti haft samskipti sín á milli.    
        
Skjalagáttin, sem er byggð á hugbúnaði frá webMethods, tengir saman og flytur gögn milli margra af helstu viðskiptakerfa sem notuð eru á Íslandi.  Gáttin virkar sem einskonar túlkur milli kerfa og getur fært gögn yfir á það form sem hentar hugbúnaðarlausninni á hinum endanum. Gáttin getur þannig t.a.m. tekið við upplýsingum úr stöðluðum Excel-skjölum og fært þær sjálfkrafa inn í gagnagrunn á hinum endanum.


Hagræðingin sem fylgir Skjalagáttinni er ótvíræð. Borið saman við pappírsviðskipti, sparast umtalsverðar fjárupphæðir, gögn verða aðgengilegri og ferlið allt rekjanlegra og hraðvirkara.

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.

 

Skjalagáttin



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli