webMethods Express
Fram að þessu hefur það aðeins verið á færi stærstu fyrirtækja að nýta sér samþættingartækni webMethods við uppbyggingu sinna upplýsingakerfa. Nú hafa Kögun og webMethods sameiginlega skilgreint webMethods hugbúnaðarpakka sem gefur fleirum kost á að nýta sér þessa tækni, webMethods Express.
Kögun setur nú á markaðinn þrjá hugbúnaðarpakka frá webMethods sem ætlaðir eru millistórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Þessir hugbúnaðarpakkar eru:
- webMethods Express Integration,
- webMethods Express SOA Governance
- webMethods Express BPMS (Business Process Management Suite).
webMethods er án nokkurs vafa sá hugbúnaður á sviði samþættingar sem náð hefur mestri útbreiðslu hér á landi. Flest af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins byggja í dag högun sinna upplýsingakerfa á webMethods. Það er álit þessara aðila að sveigjanleiki upplýsingakerfanna hafi aukist til muna með hinni nýju högun og öll vinna við uppbyggingu upplýsingakerfa þeirra sé nú mun skilvirkari.
webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).
Um áraraðir hefur webMethods verið leiðandi á sviði:
- samþættingar upplýsingakerfa
- rafrænna viðskipta
- samskipta milli fyrirtækja og vefgátta
Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.