webMethods Express BPMS
Hin hefðbundna sýn á upplýsingakerfi fyrirtækja og stofnana er út frá kerfum. Eitt kerfi þjónar bókhaldi, annað sölu, þriðja birgðahaldi, fjórða starfsmannahaldi o.s.frv. Á undanförnum árum hefur þróast önnur nálgun á upplýsingavinnsluna þar sem sjónarhornið er á verkferlana (e. Business Process). Nýlega hafa komið á markaðinn hugbúnaðarkerfi sem gera kleift að nálgast upplýsingavinnsluna á þennan hátt. webMethods hefur að margra áliti tekið forystu á þessu sviði með nýjustu útgáfunni af sínum hugbúnaði.
webMethods Express BPMS gerir meðalstórum fyrirtækjum kleift að nýta sér þessa tækni á mjög skilvirkan og framsækinn hátt.
webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).
Um áraraðir hefur webMethods verið leiðandi á sviði:
- samþættingar upplýsingakerfa
- rafrænna viðskipta
- samskipta milli fyrirtækja og vefgátta
Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.