Yfir til valmyndar

webMethods Integration

Á síðustu árum hefur sú stefna í upplýsingatæknimálum, sem byggir á samþættum upplýsingakerfum eða “Best of Breed” orðið æ álitlegri kostur þar sem miklar framfarir hafa orðið í hugbúnaðarkerfum sem auðvelda samþættingu ólíkra og ósamstæðra kerfa og hafa upplýsingatæknistjórar í æ ríkari mæli markað sínum fyrirtækjum og stofnunum þessa stefnu.

Í samstarfi við webMethods setur Kögun, á markaðinn webMethods Express Integration sem gefur fleirum færi á að nýta sér þessa tækni við uppbyggingu sinna upplýsingakerfa.

Eftirtaldar einingar eru í webMethods Express Integration pakkanum:

  • webMethods Integration Server
  • webMethods Developer
  • webMethods Broker
  • webMethods Adapter að eigin vali

Til viðbótar þessum einingum má velja milli neðangreindra eininga:

  • webMethods Trading Networks
  • webMethods Adapter að eigin vali til viðbótar þeim fyrri

Notkun á webMethods Express hugbúnaðinum

Þegar Express útgáfan af webMethods er keypt eru takmarkanir eftirfarandi:

  • Búnaðinn má einungis tengja við 5 kerfi innanhúss
  • 10 ytri aðilar geta tengst samþættingarþjóninum

Boðið er upp á viðbætur við webMethods Express sem m.a. fela í sér fjölgun þessara tenginga.

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.

webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).

Um áraraðir hefur webMethods  verið leiðandi á sviði:

  • samþættingar upplýsingakerfa
  • rafrænna viðskipta
  • samskipta milli fyrirtækja og vefgátta

Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.  

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli