webMethods Developer
webMethods Developer er þróunarumhverfið þar sem þróa má þær lausnir sem settar eru í rekstur í webMethods Integration Server.
Um er að ræða fullkomið þróunarumhverfi þar sem t.d. hópar geta unnið saman með sama forritunarkóðann. Hefðbundin forritun er ekki mikið notuð í webMethods Developer því kerfið býður upp á aðferðir við hugbúnaðarþróun sem tryggja mun meiri afköst en áður hafa þekkst. Öflug verkfæri til prófana koma með webMethods Developer auk þess sem útgáfustjórnun er studd á skilvirkan hátt svo eitthvað sé nefnt.
webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).
Um áraraðir hefur webMethods verið leiðandi á sviði:
- samþættingar upplýsingakerfa
- rafrænna viðskipta
- samskipta milli fyrirtækja og vefgátta
Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.