webMethods Integration Server
webMethods Integration Server er grunnkeyrslueiningin á bak við lausnir webMethods en í þessum þjóni keyra bæði viðskiptaferlar, þjónustur og allar aðrar samþættingarþjónustur sem mynda hina þjónustumiðuðu högun notandans.
Skalanleiki er mikill þannig að lausnin þjónar bæði stórum og smærri notendum sem vilja byggja upp þjónustumiðaða högun, hafa þörf á samþættingu ólíkra hugbúnaðarkerfa eða vilja tengjast á rafrænan hátt viðskiptavinum, birgjum eða öðrum sem sækja eða skila þarf gögnum til.
webMethods Integration Server styður nýjustu staðla fyrir gagnaflutninga og vefþjónustur eins og JSP, XML, XSLT, SOAP og WSDL.
webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).
Um áraraðir hefur webMethods verið leiðandi á sviði:
- samþættingar upplýsingakerfa
- rafrænna viðskipta
- samskipta milli fyrirtækja og vefgátta
Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.