Yfir til valmyndar

webMethods Trading Networks

webMethods Trading Networks gerir allar tengingar út fyrir veggi notandans einfaldari.

webMethods Trading Networks virkar eins og gátt milli notandans og allra ytri aðila sem viðkomandi hefur rafræn samskipti við. Prófílar þeirra sem tengst er við rafrænt eru geymdir í webMethods Trading Networks. Prófíll getur innihaldið margs konar upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa aðgang að meðan á vinnslu stendur til að samskiptin megi vera hnökralaus.

Í webMethods Trading Networks má m.a. setja upp skilgreindar raðir aðgerða (Dialog) sem hver um sig tengist mismunandi tegundum samskipta eins og t.d. sendingu rafrænna pantana, móttöku rafrænna pantana, sendingu og móttöku rafrænna reikninga o.s.frv.

webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).

Um áraraðir hefur webMethods  verið leiðandi á sviði:

  • samþættingar upplýsingakerfa
  • rafrænna viðskipta
  • samskipta milli fyrirtækja og vefgátta

Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.  

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli