Yfir til valmyndar

webMethods Express SOA Governance

Stöðugt færist í vöxt að fyrirtæki og stofnanir veiti viðskiptavinum sínum, starfsmönnum og öðrum aðgang að vefþjónustum innan viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Bæði getur verið um að ræða aðgang innan frá og ekki síður utan frá. Í báðum tilvikum, þó sérstaklega þegar um aðgang utan frá er að ræða, hefur þessi aðgangur í för með sér ýmis vandamál sem takast þarf á við en þau tengjast m.a. öryggi, afköstum og almennri stýringu á og eftirliti með þessum vefþjónustum.

webMethods Express SOA Governance er hugbúnaður sem auðveldar allt eftirlit og stjórnun á vefþjónustum m.a. með ofangreinda þætti í huga og er miðaður að aðstæðum miðlungsstórra fyrirtækja.

webMethods sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum á sviði viðskipta milli fyrirtækja á Internetinu, (B2B, business-to-business).

Um áraraðir hefur webMethods  verið leiðandi á sviði:

  • samþættingar upplýsingakerfa
  • rafrænna viðskipta
  • samskipta milli fyrirtækja og vefgátta

Með auknum rafrænum viðskiptum og samþættingu verða öll viðskipti, jafnt innan fyrirtækja sem og milli þeirra, auðveldari, öruggari og skilvirkari.  

 



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli