Stefna
Stefna Kögunar hf. samþykkt á gæðaráðsfundi
Hlutverk
Við erum framsækin þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Hlutverk okkar er að hjálpa viðskiptavinum okkar að ná árangri í krafti afburða þjónustu.
Framtíðarsýn
Við kappkostum að sjá fyrir nýjar þarfir viðskiptavina, þannig að þeim verði mætt með frumkvæði og snjöllum lausnum á réttum tíma. Við einsetjum okkur að vera í forystu á samkeppnismarkaðinum með víðsýni, snerpu og vandvirkni og taka virkan þátt í framförum sem bæta mannlíf.
Áherslur
Til að rækja framangreint hlutverk sem best og breyta framtíðarsýn í veruleika, höfum við sett okkur eftirtalin viðmið:
- Vandvirkni
Markmið með vandvirkni er að efla sífellt frammistöðu okkar og þjónustu. Vilji og hæfni til að vinna gott verk eru forsendurnar, skilgreind vinnubrögð og skilvirkt gæðakerfi eru kjölfestan. - Samskipti
Við lítum á viðskiptavini okkar sem samherja - þegar við snúum bökum saman með þeim, verður árangurinn bestur. Við sýnum lipurð og hreinskiptni í framgöngu og gerum okkur far um að verka uppörvandi á annað fólk. Við virðum tíma annarra, stöndum við gefin loforð og höfum trúnað í fyrirrúmi. - Starfsfólk
Við lítum á Kögun sem örvandi og eftirsóknarverðan starfsvettvang þar sem við eflum þekkingu okkar og færni markvisst. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og virðum frumkvæði einstaklingsins. Við leggjum grunn að árangri framtíðarinnar með hugmyndaauðgi, sjálfsaga og hæfni til nýsköpunar. - Ráðgjöf
Við miðlum réttri þekkingu á réttum tíma, setjum hagsmuni viðskiptavina í öndvegi og ráðum þeim heilt. - Þjónusta
Við veitum stöðuga, fjölbreytta og sérhæfða þjónustu sem tekur glöggt mið af þörfum og óskum viðskiptavina. Við höfum metnað til að skara framúr með árvekni, alúð og skjótum viðbrögðum. - Hugbúnaður
Þróun okkar á hugbúnaðarkerfum miðast við að auka framleiðni og samkeppnishæfni viðskiptavina, hækka þjónustustig og nýta gögn á sem hagkvæmastan hátt. - Markaðsmál
Við leggjum sérstaka áherslu á markaðslega forystu, samhliða tæknilegri forystu. - Ímynd
Það er Kögun nauðsyn að njóta sannmælis og efla orðspor okkar á markaðstorgi samkeppninnar. Það gerum við með því að leggja okkur fram við dagleg störf og kynna markvisst þjónustu okkar, styrk og sérstöðu. - Frumkvæði
Við erum frumkvöðlar að framþróun og sýnum frumkvæði gagnvart viðskiptavinum. Við beitum óhefðbundnum aðferðum til að örva hugmyndasköpun og hrindum snjöllum hugmyndum í framkvæmd. - Umhverfi og samfélag
Við kappkostum að starfsumhverfi okkar sé eins snyrtilegt og heilnæmt sem frekast er unnt. Við berum virðingu fyrir umhverfinu og viljum að samfélaginu sé akkur í starfsemi okkar. Við förum að lögum og reglum er varða starfsemi fyrirtækjanna