Gerandi
Kögun hefur sett á markað lausnina Geranda fyrir tímaskráningu starfsmanna. Gerandi hentar sérstaklega þeim sem selja út tíma starfsmanna eða vilja fylgjast með skiptingu tíma á milli verkefna og deilda og hafa þannig betri stjórn á skiptingu kostnaðar.
Gerandi er veflausn og hentar því einnig þegar verkefni eru í unnin í samvinnu fyrirtækja með verktöku. Stjórnendur hafa góða yfirsýn yfir verkefni, verkþætti og starfsmenn. Starfsmenn hafa góða yfirsýn yfir sín verkefni og stöðu orlofs og fleira. Gerandi er gerður í sama stíl og S5 kerfin og S5 Starfsfólk og getur unnið með þeim.
Aðgengilegt fyrir alla á vefnum
Gerandi er veflausn og er því aðgengilegur bæði innan fyrirtækja sem utan, henti það. Allir starfsmenn sem hafa vefskoðara geta komist í Geranda, hvar sem þeir eru staddir. Starfsmenn geta þannig skráð tíma sína þótt þeir séu staddir fjarri vinnustaðnum.
Þeir sem gagn hafa af Geranda eru m.a.:
- Verkfræðistofur
- Ráðgjafar
- Hugbúnaðarfyrirtæki
- Hugbúnaðardeildir fyrirtækja og stofnana
- Endurskoðendur
- Lögfræðingar
- Verktakar
Kerfið hentar þeim fyrirtækjum sem vilja geta fylgst með hvernig tíma starfsmanna og verktaka er varið.
Sveigjanlegt
Gerandi er tímabókhald sem er aðlagað mismunandi starfsemi með því einu að halda við töflum þar sem haldið er utan um helstu þætti starfseminnar, svo sem hvaða verk, verkhlutar og verkþættir eru í boði. Einnig er hægt að stjórna því hvaða tegund vinnu er haldið utan um svo sem dagvinnu, yfirvinnu, útköll eða jafnvel akstur. Haldið er utan um orlof, veikindi og slíkt á sama hátt. Innleiðing á Geranda er fljótleg og tenging við Starfanda gerir kerfið enn fullkomnara. Möguleikar á sjálfvirkum tengingum við viðskiptakerfi og önnur verkbókhaldskerfi eru til staðar.
Yfirsýn fyrir stjórnendur
Með Geranda geta stjórnendur fengið yfirsýn yfir starfsemina, bæði með því að skoða vinnutíma einstakra starfsmanna sem og verka og verkhluta. Boðið er upp á að afrita gögn yfir í önnur kerfi svo sem töflureikna og bókhaldskerfi, til nánari úrvinnslu. Boðið er upp á að skrá áætlanir og að bera þær saman við rauntíma.