Yfir til valmyndar

Fréttir

 

18.11.2009

Sameining Kögunar, Eskils, LS og Skýrr

Öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins - Kögun, Eskill, Landsteinar Strengur og Skýrr hafa verið sameinuð í eitt fyrirtæki, sem mun starfa undir nafni þess síðastnefnda. Gestur G. Gestsson hefur verið ráðinn forstjóri sameinaðs fyrirtækis.
Nánar
19.10.2009

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður tekur í notkun nýtt skjala- og málakerfi sem byggir á S5

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hefur það hlutverk að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.
Nánar
27.08.2009

Garðabær tekur í notkun S5 Verkbeiðnir

Nú þessa dagana er Kögun að ljúka við innleiðingu nýs verkbeiðnakerfis hjá tölvudeild Garðabæjar.
Nánar
02.06.2009

CRM lausn Vodafone vekur athygli

CRM lausn Vodafone á Íslandi hefur hlotið verðskuldaða athygli auk þess sem bæði Microsoft og Software AG verðlaunuðu hana. Nýleg sendi Software AG frá sér svokallaðan Customer Profile um Vodafone á Íslandi og þá sérstaklega þessa tilteknu CRM lausn sem Kögun vann í samstarfi við Vodafone.
Nánar
25.03.2009

Heilsuvefsjá - ný upplýsingaveita um heilbrigðisþjónustu

Kögun ásamt Samsýn hafa að undanförnu unnið að metnaðarfullu verkefni með Landlæknisembættinu sem hefur falist í því að koma á fót upplýsingavef fyrir stjórnvöld, stofnanir, heilbrigðisstarfsmenn og almenning þar sem hægt er á afar einfaldan og myndrænan hátt að nálgast tölfræðiupplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
Nánar
27.01.2009

Kögun tekur þátt í ráðstefnu Microsoft

Microsoft á Íslandi stóð á dögunum fyrir ráðstefnu sem bar heitið "Það besta frá convergence & tech-ed".
Nánar
17.11.2008

Margverðlaunuð CRM lausn Vodafone á Íslandi

CRM lausn Vodafone á Íslandi hefur vakið verðskuldaða athygli upp á síðkastið. Microsoft verðlaunaði lausnina nýverið auk þess sem Software AG verðlaunaði hana á alþjóðlegri ráðstefnu sem fram fór í Florida i byrjun nóvember sl. og fjallað hefur verið um á vefsíðu Kögunar.
Nánar
21.10.2008

Kögun og Nintex skrifa undir samstarfssamning

Nýverið var gengið frá samstarfssamingi milli Kögunar og ástralska fyrtækisins Nintex.
Nánar
20.08.2008

Kögun semur við stjórnvöld í Liechtenstein

Kögun gekk nýlega frá samningi við stjórnvöld í Liechtenstein um að taka að taka sér þróun og uppsetningu hugbúnaðarkerfis sem notað verður við afgreiðslu vegabréfsáritana til Liechtenstein.
Nánar
15.05.2008

Aukin skilvirkni í opinberri stjórnsýslu

Nú á dögunum fóru fæðingatilkynningar að flæða sjálfkrafa frá Landspítalanum til Þjóðskrár í gegn um Rafrænt Þjónustulag Ríkisins sem er rekið af Forsætisráðuneytinu.
Nánar
25.02.2008

Ekkert lát á velgengni webMethods hér á landi

Nú á dögunum var gengið frá enn einum samningnum um kaup á webMethods samþættingarhugbúnaðinum. Að þessu sinni var það Gagnaveita Reykjavíkur sem skrifaði undir samning við Kögun um kaup og innleiðingu á samþættingarhugbúnaðinum frá webMethods.
Nánar
31.01.2008

Þjóðskrá velur Kögun og webMethods

Í lok síðasta árs gekk Þjóðskrá frá samningum við Kögun um kaup á samþættingarhugbúnaðinum webMethods. Þar með bættist Þjóðskrá í ört stækkandi hóp webMethods notenda á Íslandi.
Nánar
28.06.2007

XL Airway kaupir webMethods

Breska flugfélagið XL Airways skrifaði á dögunum undir samning við Kögun um kaup og innleiðingu á samþættingarhugbúnaði frá webMethods.
Nánar
10.05.2007

webMethods Express

Nú er það ekki bara á færi hinna stærstu að nýta sér kosti webMethods. Kögun og webMethods hafa sameinginlega skilgreint webMethods hugbúaðarpakka sem verðlega eru miðaðir að miðlungsstórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Hér er um að ræða mjög áhugaverðan kost fyrir framsækna aðila sem hafa metnað til að nota upplýsingatæknina starfseminni og rekstrinum til framdráttar.
Nánar
27.04.2007

Kögun á toppnum

Starfsmenn okkar við NRTF í Grindavík voru svo sannarlega hátt uppi á dögunum, í orðsins fyllstu merkingu, þegar þeir klifu 1000 ft (327m) mastrið til að skipta um Beacon ljósið í toppi þess.
Nánar
27.03.2007

Sjóvá bætist í örtstækkandi hóp notenda webMethods

Nýlega var undirritaður samningur milli Kögunar og Sjóvár um kaup þeirra síðarnefndu á samþættingarhugbúnaði frá webMethods. Sjóvá hefur þar með bæst í hóp þeirra fjölmörgu framsæknu fyrirtækja sem valið hafa webMethods sem grunnlag til að byggja sína UT högun á.
Nánar
15.12.2006

Styrkveiting Kögunar til Geðhjálpar

Undanfarin ár hefur Kögun hf. haft það fyrir sið að í stað þess að senda viðskiptavinum og velunnurum sínum jólakort hefur fyrirtækið látið andvirðið renna til málefnis þar sem féð kemur að góðum notum, þörfin er rík og málefnið gott.
Nánar
20.11.2006
- Teymi

Teymi hf. skráð í Kauphöll Íslands

Teymi hf. er nýtt félag á hlutabréfamarkaði hér á landi en það var skráð á Aðallista í Kauphöll Íslands klukkan 10 í morgun. Útgefnir hlutir í Teymi hf. eru alls 2.728.200.000 að nafnverði. Teymi er fjarskipta- og upplýsingatæknifélag en í samstæðu þess eru Vodafone, Kögun, Skýrr, Securitas og EJS. Þá rekur Teymi einnig fjarskiptafyrirtækið P/F Kall í Færeyjum, SKO, BTnet og þjónustufyrirtækið Mömmu. Í stjórn Teymis eru: Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður, Þorsteinn M. Jónsson, Guðmundur Ólason, Matthías Imsland og Þór Sigfússon.
Nánar   | Skráningarlýsing Teymis
25.10.2006

Kögun hf. í sjöunda sæti á lista yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu.

Kögun hf. hefur verið útnefnt eitt af tíu framsæknustu fyrirtækjum Evrópu samkvæmt lista sem Europe’s 500 – Entrepreneurs for Growth gefa út á hverju ári en fyrirtækin sem valin eru inn á þennan lista eru þau sem þótt hafa sýnt hvað mesta aukningu í veltu og starfsmannafjölda frá árinu 2002.
Nánar
03.10.2006

Sameining Kögunar og VKS

Eins og fram hefur komið í fréttum var sú ákvörðun tekin nýverið að skipta upp rekstri Dagsbrúnar hf. móðurfélags Kögunar og VKS í tvö félög, fjarskipta og upplýsingatæknifélagið Teymi hf. annars vegar og 365 hf. sem starfar á sviði fjölmiðla og afþreyingar hins vegar.
Nánar
02.10.2006

Verkefnastjórnun fyrir breska herinn

Nýlega birtist í Viðskiptablaðinu viðtal við Kurt Van Meter, starfsmann Kögunar þar sem hann gerði grein fyrir verkefnastjórn sinni fyrir og með NAAFI.
Nánar   | NAAFI verkefnastjórnun
12.09.2006

Dagsbrún verði tvö félög, skráð í Kauphöll Íslands

Stjórn Dagsbrúnar hf. (ICEX:DB) samþykkti á fundi sínum 12. september 2006 að leggja til við hluthafafund að Dagsbrún verði skipt upp í tvö rekstrarfélög sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands. Félögin verði annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf. og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf. Stofnað verði sérstakt félag utan um eignir sem ekki falla að kjarnastarfsemi félaganna tveggja, í minnihlutaeigu hvors um sig, með aðkomu þriðja aðila. Jafnframt er stefnt að sölu fasteigna Dagsbrúnar bæði á Íslandi og í Bretlandi. Áætlað er að þessar aðgerðir lækki skuldsetningu félaganna tveggja um 13-14 milljarða króna.
Nánar
11.09.2006

Kögun hf. gerir samning um rekstur fjarskiptastöðvar Bandaríska flotans í Grindavík

Bandaríski flotinn hefur, að undangengnu útboði, tekið tilboði Kögunar hf. í rekstur fjarskiptastöðvar flotans í Grindavík. “Útboðið sem fram fór fyrr í sumar er hluti af þeirri endurskipulagningu sem átt hefur sér stað í tengslum við brotthvarf Varnarliðsins. Tímasetningin er góð í ljósi breytinga á starfsemi Kögunar á Keflavíkurflugvelli en þarna tekst okkur að skapa áframhaldandi störf fyrir hluta þeirra starfsmanna sem sinnt hafa þjónustu við Varnarliðið á okkar vegum” segir Bjarni Birgisson hjá Kögun hf.
Nánar
05.09.2006

Sex mánaða uppgjör Kögunar hf. janúar til júní 2006

EBITDA hagnaður Kögunar hf. var 826 mkr. og hækkar um 19% frá sama tímabili 2005.
Nánar   | Árshlutareikningur jan. - jún. 2006
09.06.2006

Hugur og Ax sameinast

Ákveðið hefur verið að sameina hugbúnaðarfyrirtækin Hug hf. og Ax hugbúnaðarhús hf. Hið sameinaða félag mun nefnast HugurAx. HugurAx verður eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með um 125 starfsmenn.
Nánar
04.05.2006

Þriggja mánaða uppgjör Kögunar hf.

EBITDA hagnaður Kögunar hf. var 439 mkr. og hækkar um 30% frá sama tímabili 2005.
Nánar   | Árshlutareikningur jan.-mars 2006
23.03.2006

Kögun hf. gengur frá kaupum á SCS, Inc. í Kaliforníu

REYKJAVÍK / SANTA MONICA, CA – 20. mars 2006 – Kögun hf. hefur gengið frá kaupum á hugbúnaðarfyrirtækinu SCS, Inc. í Kaliforníu.
Nánar
22.02.2006

Ársskýrsla Kögunar hf. 2005

Aðalfundur Kögunar hf. verður haldinn miðvikudaginn 15. mars í Þingsal 1 á Hótel Loftleiðum og hefst fundurinn kl 12.
Nánar   | Ársskýrsla Kögunar hf. 2005
21.02.2006

Ársuppgjör Kögunar hf. 2005

EBITDA hagnaður Kögunar sá mesti frá upphafi eða 1.425 milljónir kr. og hækkar um 121% á milli ára.
Nánar   | Uppgjör Kögunar hf. 2005
13.02.2006

Skýrr hf. kaupir meirihluta í EJS hf.

Skýrr hf., dótturfélag Kögunar hf., hefur skrifað undir samning um kaup á 58,7% eignarhlut í EJS hf.
Nánar
04.01.2006

Og Vodafone gerir samning um kaup á webMethods búnaði

Nú fyrir skömmu var gengið frá samningum milli Og fjarskipta hf. og Kögunar um kaup á webMethods samþættingarbúnaði. Samið hefur verið við Kögun hf. um innleiðingu á búnaðinum á næstu mánuðum.
Nánar



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli