Frétt
19.10.2009
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður tekur í notkun nýtt skjala- og málakerfi sem byggir á S5
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hefur það hlutverk að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.
Til að styðja við starf ráðgjafa Starfsendurhæfingarsjóðs leitaði sjóðurinn í mars sl. til nokkurra hugbúnaðarfyrirtækja eftir tilboðum í hugbúnaðarlausn sem héldi utanum mál skjólstæðinga sinna og skjöl og annað efni þeim tengdum. Miklar kröfur voru gerðar til aðgangstakmarkana og upplýsingaleyndar vegna trúnaðar við skjólstæðinga sjóðsins auk þess sem kerfið þurfti að vera aðgengilegt og auðvelt í notkun og standa undir ríkum kröfum til skjalastjórnunar og málareksturs.
Kögun sendi inn tilboð þar sem boðin var lausn sem byggir á S5 lausnagrunninum en S5 hefur náð mikilli útbreiðslu hér á landi og þjónar ýmiskonar starfsemi á eins ólíkum sviðum eins og skjalastjórnun, leikskólarekstri, landamæravörslu, verkefnastjórnun, gæðaúttektum og málrekstri svo eitthvað sé nefnt.
Í maí sl. var gengið til samninga við Kögun um verkefnið og er skemmst er frá því að segja að S5 Skjalastjórnun og S5 Málarekstur eru nú komin í notkun hjá Starfsendurhæfingarsjóði og styður við hið góða starf sem þar fer fram.
Kögun óskar VIRK Starfsendurhæfingarsjóði til hamingju með nýja upplýsingakerfið.
Frekari upplýsingar veitir Gísli R. Ragnarsson hjá Kögun ehf. gisli@kogun.is.
til baka