Yfir til valmyndar

Hópvinnukerfi

Það er stefna Kögunar að bjóða heildstæð hópvinnukerfi sem byggja á stöðluðum lausnum og aðlögunum á þeim en einnig að bjóða uppá sérþróaðar lausnir og ráðgjöf.  Kögun þróar bæði eigin lausnir og býður jafnfram erlendar hópvinnulausnir með aðlögunum að þörfum viðskiptavina sinna.

Á undanförunum árum hefur Kögun þróað hópvinnulausnir fyrir Microsoft umhverfið. Flestir tölvunotendur þekkja gagnavinnslu í vefumhverfi og í Microsoft skrifstofuumhverfinu. Hópvinnulausnir Kögunar eru hluti af þessu umhverfi og hafa sama þægilega viðmótið. Notendurnir eiga því sérstaklega auðvelt með að tileinka sér lausnirnar.

Kerfin hafa það meginhlutverk að tryggja tengingu milli starfsmanna og samnýtingu upplýsinga. Þau styðja nýjar áherslur í rekstri fyrirtækja, svo sem á sviði gæðastjórnunar, þekkingarstjórnunar, verkefnastjórnunar, skjalastjórnunar, netvæðingar og hreyfanleika starfsmanna.

Kostir hópvinnulausna í Microsoft umhverfinu

  • samræmt notendaviðmót
  • samhæfing við Office hugbúnaðarfjölskylduna
  • stytting vinnuferla
  • aukin hagræðing í rekstri

Biðlarahluti lausnanna er í almennu vefviðmóti og öll gögn eru geymd á Microsoft SQL gagnagrunni. Með því að nota Microsoft SQL gagnagrunn verða lausnirnar mun áreiðanlegri og öflugri.

Vörur Kögunar

Kögun býður eftirfarandi hópvinnulausnir tilbúnar til uppsetningar:

Auk þess eru í boði Sérlausnir.



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli